„Hvað þú borðar fyrir og eftir æfingu getur verið leikbreytir fyrir betri árangur, vöðvabyggingu og frammistöðu.“Svona hefst pistill Ragnhildar Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga Nagli, á Facebook. Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari. Pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.Ragnhildur segir það skipta miklu máli hvað fólk borðar fyrir og eftir æfingu, en allt of margir æfa eldsnemma á morgnana með tóman maga eða illa nærðir.
Ragnhildur segir mikilvægt að borða rétt fyrir æfingu – Margir gera þessi mistök