Í fréttatímanum verður einnig greint frá því að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur vísað máli gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins vegna bókunar 35. Stofnunin telur að íslensk lög tryggi ekki forgang EES-reglna sem hafa verið lögfestar hér þegar lög stangast á. Rætt verður við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem telur líkur á að ESA falli frá málinu ef Alþingi samþykkir frumvarp hennar.
Ítarlegt sjónvarpsviðtal Elísabetar Ingu við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra sem birt var á Vísi í morgun, hefur vakið athygli. Formaður Starfsgreinasambandsins bregst við, furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið.
Berghildur Erla heldur áfram að fjalla um svefnlyfjaþjóðina og greint er frá því í hádegisfréttum að notkun ofnæmis, geðrofs og taugalyfja hafi stóraukist hér á landi á innan við áratug. Vísbendingar eru um að aukningin tengist því að lyfin séu líka notuð við svefnvanda. Landlæknir segir þróunina kalla á nánari skoðun. Þó skylt sé að skýra af lyfjum sé ávísað sé það ekki alltaf gert.
Við greinum einnig frá viðhorfskönnun um vændiskaup, en í niðurstöðum kemur fram að innan við helmingur karla er fylgjandi því að refsað sé fyrir kaup á kynlífsþjónustu. Yfirgnæfandi meirihluti kvenna er hins vegar á þeirri skoðun. Til stendur að herða refsingar í málaflokknum en afbrotafræðingur segir slíkt jafnvel geta sett seljendur í erfiðari eða hættulegri stöðu.
Fjölbreyttur og áhugaverður hádegisfréttatími á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.