Ragnar Rögnvaldsson skrifar:
Ég verð að viðurkenna að ég er löngu hættur að ná utan um alla frasana sem koma frá ríkisstjórninni. Það á að laga Ísland, það var boðað verðmætasköpunarhaust, svo átti að ræsa vélarnar, talað er um tiltekt, hagræðingu, tekjuöflun og að láta verkin tala. Og þetta er örugglega ekki nema brot af því sem hefur verið látið frá sér fara. Ég man einfaldlega ekki alla frasana lengur, enda virðast þeir koma hraðar en lausnirnar.
Maður er eiginlega farinn að velta því fyrir sér hvort það sé sérstök deild í Stjórnarráðinu sem sjái um að finna ný nöfn á hlutina. Það virðist að minnsta kosti ekki skorta hugmyndaflugið á þeim bænum þegar kemur að orðavali.
Verðmætasköpunarhaustið og vélarnar
Verðmætasköpunarhaustið fannst mér sérstaklega skemmtilegt. Það hljómaði svo vel að maður hefði næstum getað haldið að verðmætin myndu spretta upp úr jörðinni með haustlægðunum. Ég veit ekki alveg hvernig það haust var gert upp, en væri ekki ágætt að fá að sjá árangurinn áður en næsta árstíð fær sambærilegt heiti?
Og svo átti auðvitað að ræsa vélarnar.
Ég veit ekki hvort þær eru komnar í gang, hvort þær séu enn í upphitun eða hvort einhver sé enn að leita að lyklunum. En það væri ágætt að fá að vita hvert á að keyra áður en stigið er bensínið í botn.
Tekjuöflun og hagræðing
Og svo er það þessi eilífa tekjuöflun.
Það er merkilegt hvað hægt er að gera skattheimtu fallega með því einu að breyta um orð. Þegar stjórnvöld þurfa meiri peninga er talað um tekjuöflun. Það hljómar miklu betur en að segja einfaldlega að það eigi að sækja meiri peninga í vasa fólks og fyrirtækja.
Auðvitað þarf ríkið tekjur. Það veit hver einasti maður. En mér finnst ekkert óeðlilegt við að stjórnvöld séu hreinskilin um hvaðan peningarnir eiga að koma og hverjir eiga að borga.
Sama á við um hagræðinguna. Ég er mikill stuðningsmaður þess að ríkið fari betur með peningana okkar. Það er víða hægt að taka til og ég held að fáir myndu gráta það þótt eitthvað af yfirbyggingunni hyrfi.
En hagræðing er ekki sjálfkrafa góð bara vegna þess að ráðherra kallar hana því nafni. Ef sparnaður ríkisins þýðir að almenningur þarf að greiða meira eða sækja þjónustu lengra í burtu, þá hefur kostnaðurinn kannski bara verið færður til.
Þetta þekkjum við sérstaklega vel úti á landi. Það sem lítur út fyrir að vera lítill liður í fjárlögum getur skipt heilu byggðarlagi verulegu máli. Það er auðvelt að tala um skilvirkni þegar maður þarf ekki sjálfur að keyra langar vegalengdir til að sækja þjónustu.
Að laga Ísland
En stærsti frasinn hlýtur þó að vera að ríkisstjórnin sé að laga Ísland.
Ef ríkisstjórnin er að laga Ísland hlýtur hún að geta sýnt okkur hvað hún er að laga, hvernig hún ætlar að laga það og hvaða árangri hún hefur þegar náð. Það er ekki nóg að segja aftur og aftur að verið sé að laga Ísland. Almenningur á rétt á að sjá hvað hefur raunverulega breyst til batnaðar.
Hvernig vitum við annars að viðgerðin virki? Hver ákveður hvað telst lagfæring? Og hver borgar reikninginn?
Það er nefnilega hægt að kalla ýmislegt lagfæringu án þess að allir séu sammála um að nokkuð hafi batnað.
Hverjir skapa verðmætin?
Mér finnst líka svolítið merkilegt hvað orðið verðmætasköpun er orðið vinsælt í stjórnmálum. Eins og verðmæti verði til vegna þess að einhver ráðherra ákveður að nú skuli þau skapast.
Það er fólk og fyrirtæki um allt land sem skapar verðmæti á hverjum einasta degi. Sjómenn, bændur, iðnaðarmenn, þjónustufyrirtæki, frumkvöðlar og fjöldi annarra. Fólk sem þarf að mæta til vinnu, taka áhættu, fjárfesta og standa undir rekstri.
Það fólk þarf ekki nýtt slagorð á hverju hausti. Það þarf skynsamlegt rekstrarumhverfi, fyrirsjáanleika og stjórnvöld sem skilja að peningar verða ekki til í ríkissjóði af sjálfu sér.
Mannamál í stað frasa
Nú veit ég vel að engin ríkisstjórn getur gert öllum til hæfis og það þarf stundum að taka óvinsælar ákvarðanir. Ég geri enga kröfu um annað. En mér finnst alveg eðlilegt að gera þá kröfu að ráðherrar tali mannamál og segi okkur hvað ákvarðanir þeirra þýða í raun.
Það er ekkert að því að segja að það þurfi að afla meiri tekna. En segið þá hverjir eiga að greiða þær. Það er ekkert að því að vilja hagræða. En segið þá hvar á að spara og hvaða áhrif það hefur. Og ef ríkisstjórnin telur sig vera að laga Ísland, þá hlýtur hún að geta sýnt okkur hvað hefur lagast.
Ég er satt að segja orðinn ansi þreyttur á þessari frasapólitík. Hún er ekki bundin við einn flokk og hefur vissulega þekkst lengi, en núverandi ríkisstjórn virðist að mínu mati hafa tekið hana býsna langt.
Það er auðvitað þægilegt að geta pakkað nánast hverri ákvörðun inn í fallegt orðalag. En það breytir ekki innihaldinu.
Ég veit ekki hvað næsti frasi verður. Við eigum væntanlega eftir að heyra meira um sókn, uppbyggingu, ábyrgð og alls konar árstíðabundna verðmætasköpun.
Sjálfur væri ég alveg til í að heyra aðeins minna um hvað ríkisstjórnin ætlar að kalla hlutina og aðeins meira um hvað hún ætlar raunverulega að gera.
Það væri ágætis tilbreyting.
Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál og stuðningsmaður Miðflokksins.