Pétur Hafliði Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að sér hafi blöskrað umræða um tillögu Miðflokksins um tímamörk á gjaldfrjálsri túlkaþjónustu á fundi borgarstjórnar í gær. Hann tengir málflutninginn við „þjóðernispopúlísku og fjarhægri bylgju“ á Vesturlöndum og hefði viljað að meirihlutinn felldi tillöguna strax.
Í færslu á Facebook gagnrýnir Pétur hvernig rætt hafi verið um innflytjendur undir formerkjum umræðu um túlkaþjónustu. Hann segir tilhneigingu til að draga sérstaklega fram kostnað vegna fólks af erlendum uppruna og kenna útlendingum um það sem aflaga fari.
„Við í Samfylkingunni mætum alltaf til leiks til að hlusta og taka málefnalega umræðu, það má tala um allt, en ég verð að viðurkenna að mér blöskraði umræðan.“
Vildi að tillagan yrði felld strax
Pétur segir fyrsta flutningsmann tillögunnar að mestu hafa haldið sig við efnið og rætt aukinn kostnað við túlkaþjónustu. Næsti ræðumaður Miðflokksins hafi hins vegar farið í allt aðra átt.
„Næsti ræðumaður þeirra gerði hins vegar markmiðið mun skýrara: þar var farið lóðbeint í það hvernig samfélagið væri að sligast undan innflytjendum sem þvældust fyrir og eyðileggi kerfin okkar og að öryggi okkar sé ógnað – án þess að nokkuð kæmi fram hvernig það tengdist túlkaþjónustu borgarinnar.“
Hann gagnrýnir jafnframt afgreiðslu meirihlutans á málinu.
„Mér finnst miður að meirihlutaflokkarnir ákváðu að vísa þessari tillögu áfram til borgarráðs í stað þess að fella hana einfaldlega strax.“
Kostnaður meira en tvöfaldaðist
Tillaga Miðflokksins felur í sér áskorun til ríkisstjórnar og Alþingis um að endurskoða löggjöf um túlkaþjónustu. Þar er lagt til að sérstaklega verði skoðað að hætta greiðsluþátttöku eftir ákveðinn tíma.
Samkvæmt greinargerð tillögunnar jókst kostnaður Reykjavíkurborgar vegna túlkaþjónustu úr 55,3 milljónum króna árið 2020 í 127,1 milljón árið 2024, að frádregnum endurgreiðslum ríkisins og kostnaði við táknmálstúlkun. Í greinargerðinni er jafnframt tekið fram að tryggja þurfi túlkun þegar hún sé lögbundin eða nauðsynleg, meðal annars vegna barna, félagsþjónustu, barnaverndar, fötlunar og réttaröryggis.
Pétur segir kostnaðaraukninguna ekki hafa orðið í tómarúmi. Hann bendir á komu fólks á flótta frá Úkraínu eftir innrás Rússa, auk verðbólgu og launahækkana. Fyrstu þrjú til fjögur árin séu þau sem krefjist mestrar þjónustu, þegar fólk sé að fóta sig í nýju landi.
Hann gagnrýnir einnig tilvísun tillögunnar til Svíþjóðar og segir hún gefa til kynna að túlkunargjald sé þar orðið að lögum. Í frumtexta tillögunnar er hins vegar tekið fram að gjaldið hafi verið lagt til.
„Túlkaþjónusta og íslenskukennsla eru ekki andstæður“
Pétur segir að ekki sé staðið nógu vel að inngildingu og íslenskukennslu. Íslenskukunnátta sé lykill að þátttöku í samfélaginu, en þar til fólk hafi náð nægilegri færni sé túlkaþjónusta spurning um réttaröryggi.
„Túlkaþjónusta og íslenskukennsla eru ekki andstæður.“
Hann nefnir að foreldrar þurfi að skilja stöðu barna sinna í skóla og fjölskyldur félagslega ráðgjöf, réttindi sín og skyldur. Borgin þurfi jafnframt að geta sinnt skyldum sínum í barnavernd, þjónustu við fatlað fólk og velferðarþjónustu.
Pétur gagnrýnir einnig það sem hann lýsir sem niðurlagningu Alþjóðateymisins, Mannréttindaskrifstofunnar og Virknihússins í hagræðingarskyni. Hann telur sparnaðinn óljósan og að afleiðingarnar verði samfélaginu margfalt dýrari til framtíðar.
Þótt sýna eigi ábyrgð í rekstri, nýta fjartúlkun og bæta innkaup eigi fyrsta pólitíska svarið við inngildingaráskorunum ekki að vera hvenær hægt sé að hætta að greiða fyrir túlka.
„Það getur verið dýrt að túlka, en það getur verið miklu dýrara fyrir samfélagið að misskilja – bæði í krónum talið og í alvarlegum mannlegum afleiðingum.“