Tvö af öflugustu vörumerkjum landsins á sviði afþreyingar og drykkja sameina nú krafta sína þegar Pepsi MAX verður á ný drykkjarvöru samstarfsaðili Smárabíós frá og með 15. september. Samstarfið markar upphaf nýs kafla þar sem markmiðið er að gera bíóferðina að enn betri upplifun fyrir íslenska bíógesti, eins og kemur fram í tilkynningu.
Pepsi MAX mætt aftur í Smárabíó