Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun.
Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar.
Hægt er að horfa á þáttinn í beinni hér fyrir neðan sem og á sjónvarpsrás Vísis, hann hefst klukkan 14:00. Þegar þætti lýkur verður hægt að nálgast hann í heild sinni hér og í sjónvarpsappi Sýnar.