Nicholas Kristof blaðamaður greinir frá viðtölum sínum við 14 palestínska fanga í pistli í The New York Times nýverið. Hann segir ofbeldi gegn Palestínumönnum, konum og börnum, útbreitt af hálfu hermanna, landtökumanna, við yfirheyrslur hjá Shin Bet-leyniþjónustunni og af fangavörðum.
Kristof segir að það séu ekki sannanir fyrir því að yfirvöld í Ísrael fyrirskipi nauðganir, en samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem kom út í fyrra og Kristof vitnar í kemur fram að kynferðisofbeldi gegn palestínskum föngum sé orðið stöðluð aðferð og stór þáttur í illri meðferð á Palestínumönnum.
Önnur nýleg skýrsla frá Euro-Med Human Rights Monitor greinir einnig frá því að kynferðisofbeldi sé kerfisbundið beitt gegn Palestínumönnum og sé stundað víða sem skipulögð stefna stjórnvalda.
Viðmælendur Kristofs, konur og karlar, lýsa grófu og niðurlægjandi ofbeldi sem þeir urðu fyrir í haldi Ísraela. Áhöldum og vopnum er beitt við ofbeldið, hundum er sigað á fólk og þeir látnir ráðast á það. Sumir viðmælendur greindu frá því að ofbeldið hefði verið myndað af gerendum.
Þolendur eiga oft erfitt með að ræða ofbeldið eða greina frá því. Þeim er hótað og mikil skömm fylgir því að verða fyrir ofbeldi og fólk óttast að slæmt orðspor festist við sig eða fjölskyldur þeirra.
Kristof vísar í frétt The New Arab frá því í október 2025 þar sem segir að um 20.000 Palestínumenn hafi verið í haldi Ísraela frá upphafi átakanna 7. október 2023. Þá vísar hann í upplýsingar frá mannréttindasamtökunum HaMoked sem segja að yfir 9.000 Palestínumenn séu í haldi Ísraela nú.
Ísraelsk stjórnvöld hafa hafnað því að Palestínumenn séu beittir kynferðislegu ofbeldi í haldi þeirra. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra og Gideon Sa’ar utanríkisráðherra Ísraels tilkynntu í dag að þeir ætluðu að fara í mál við New York Times fyrir umfjöllunina – sem sé lygar einar.