Parið greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Þar birtu þau bæði mynd af sér saman og sónarmynd af ófæddu barninu og skrifuðu við hana: „Lítil stelpa í desember.“
Óttar Kolbeinsson Proppé er íslenskufræðingur sem starfaði í fjölmiðlum um árabil, fyrst hjá Fréttablaðinu og síðan sem fréttamaður á Stöð 2. Þaðan fór hann yfir í menningar- og viðskiptaráðuneyti Lilju Daggar Alfreðsdóttur og hefur verið hjá máltæknimiðstöðinni Almannarómi síðan í árslok 2024.
Rafnhildur Rósa Atladóttir er bókmenntafræðingur sem hefur starfað sem kennari í Hagaskóla síðustu ár. Rafnhildur kemur úr mikilli menningarfjölskyldu, dóttir leikarans Atla Rafns Sigurðssonar og Brynhildar Guðjónsdóttur, leikkonu, leikstjóra og leikskálds.