Undirbúningur fyrir almyrkva á sólu er í fullum gangi og í mörg horn er að líta. Nákvæmur fjöldi gesta er óþekktur en gerðar hafa verið ýmsar ráðstafanir.
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segir stemninguna í sveitarfélaginu almennt góða fyrir komandi viku, verið sé að reikna út þann fjölda gesta sem von sé á vestur og hafa þjónustuaðilar gert ýmsar ráðstafanir. Til dæmis hefur liðsauki verið fenginn í veitingasölu og í matvöruverslanir.
„Nú erum við bara aðeins að átta okkur á því hvað búast má við miklum fjölda og fólk er bara farið að hugsa hvað á svona að gera.“
Óþægileg óvissa
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, er sammála Gerði um að óþægilegt sé að vita ekki hversu margir séu væntanlegir að fylgjast með sólmyrkvanum. Hann segir að vitað sé um skipulagðar rútuferðir á svæðið og að gert hafi verið ráð fyrir þeim en að nákvæman fjölda gesta sé ekki hægt að áætla.
„Þetta er ekki eins og þegar þú heldur tónleika og selur þúsund miða, þá áttu von á þúsund manns.“
Kristinn segir að vel sé hægt að taka á móti innan við tíu þúsund manns, innviðir séu til staðar fyrir þann fjölda. Vandi gæti skapast ef fjöldinn verður meiri.
„Þú veist, fólk þarf að komast á klósett, fólk þarf að fá mat og komast um vegakerfið og annað þannig að þá svona gæti ég trúað að maður gæti aðeins svitnað ef það rætist.“
Viðhald vega gengið vel
Í mörg horn er að líta í undirbúningi. Unnið er við að betrumbæta ástand vega á Vestfjörðum og G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, segir undirbúningsvinnu hafa gengið vel. Þá sé til skoðunar hvort hægt verði að greiða fyrir umferð á Dynjandisheiði en framkvæmdir hafa staðið þar yfir í um áratug.
Gerður segir að búið sé að hefla alla þá malarvegi sem eru mest eknir.
„Vegagerðin er búin að vera mjög öflug að hefla og við erum búin að fá auka hefil til þess að fara yfir þá malarkafla hér sem eru á vegum.“
Fyrstu langtímaveðurspár fyrir 12. ágúst eru dottnar inn á vefmiðla Veðurstofunnar. Gerður segist hafa auga með mörgum spám en þá einna helst þeirri norsku.
„Langtímaspáin er kannski bara fín, maður er náttúrulega að skoða þetta á fleiri en einum miðli og ég horfi kannski svona helst á norsku spána og hún lítur bara vel út.“