Samfylkingin eykur fylgi sitt milli kannana á toppnum um tæp tvö prósentustig og fer nú í 28 prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í gær. Það gæfi flokknum 20 þingsæti. Sjálfstæðisflokkurinn er í öðru sæti með 25 prósent sem er nær óbreytt frá síðustu könnun. Flokkurinn hefur að nýju náð örugglega öðru sætinu af Miðflokknum sem hefur verið á stöðugri niðurleið allt þetta ár samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups, náði mest 22 prósenta mælingu í byrjun þessa árs.
Orðið á götunni: Samfylkingin eykur fylgi sitt á toppnum – ríkisstjórnin héldi velli samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups