Tveir menn voru handteknir á tveimur mismunandi stöðum í Hafnarfirði í dag fyrir ólöglega dvöl í landinu. Annar þeirra var þar að auki við vinnu.Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Annar mannanna var handtekinn í miðbæ Hafnarfjarðar en hinn í hverfi 221 sem nær yfir Ásland, Setberg og Velli.Sá síðarnefndi var jafnframt handtekinn fyrir að vinna án atvinnuleyfis.Meðal annarra verkefna lögreglunnar í dag voru að tilkynnt var um þjófnað og innbrot í Kópavogi en ekki er vitað hver gerandi er.
Ólöglegir innflytjendur handteknir í Hafnarfirði