Hópurinn krefst þess að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins og endurskoði afstöðu sína í samræmi við samþykkta stefnu flokksins um mannúð, réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Meðal þeirra sem skrifa undir greinina eru Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingar og ráðherra, Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar RÚV, Stein Olav Romslo borgarfulltrúi, Sabine Leskopf fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Hrannar Björn Arnarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns flokksins.
Segja þetta ekki eiga að vera nálgun flokksins
Í grein sinni benda þau á að fjöldi umsagna mannréttindasamtaka hafi borist þinginu í aðdraganda lagasetningar þar sem þessum áformum var mótmælt og bent á önnur vægari úrræði. Þá segja þau samþykktina stríða gegn stefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á síðasta landsfundi flokksins.
Þar segi að „nálgun flokksins í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd skuli vera „út frá grunngildum jafnaðarstefnunnar með mannúð og virðingu fyrir mannréttindum að leiðarljósi““ og að Samfylkingin leggi áherslu á „réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem hafa fengið synjun, þ.m.t. einstaklinga í umborinni dvöl, og leggist gegn varðhaldsvistun nema í undantekningartilvikum þegar nauðsyn ber til og engin önnur úrræði duga“.“
Hópurinn segir ótækt að sjá að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi samþykkt lög sem innleiða „varðhaldsvistun í þessum málaflokki, en lögin fjalla ekkert um „önnur úrræði“ sem grípa mætti til áður en til varðhaldsvistunar kemur“.
Hópurinn segir gagnrýni að miklu leyti hafa snúist um að fangelsa ætti börn og að í lokaútgáfu hafi því verið breytt og bætt við að „útbúa skyldi sérstakar brottvísunarbúðir fyrir barnafjölskyldur.“
Hópurinn segir það engu breyta.
„… um frelsissviptingu barna er að ræða, sem brýtur gegn ákvæðum Barnasáttmálans eins og fjöldi samtaka á borð við Barnaheill og UNICEF hafa bent á.“
Hópurinn bendir sömuleiðis á að í stefnu flokksins sé fjallað um umsækjendur um alþjóðlega vernd og að mikilvægt sé að tekið sé tillit til þarfa og aðstæðna barna í samræmi við Barnasáttmálann.
Kröpp hægri beygja
„Þessi krappa hægri beygja í stefnu flokksins hefur ekki verið rædd á vettvangi flokksins og er að okkar mati í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið. Þá er rétt að doka við og íhuga pólitíska vegferð sem er í andstöðu við sjónarmið mannréttindasamtaka, sjónarmið mannúðar og mildi – á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins hrósa Samfylkingunni fyrir „sinnaskiptin“,“ segir í greininni.
Með sameiginlegu bréfi sínu mótmæla þau lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmd þeirra verði stöðvuð þar til tryggt hefur verið að börn verði ekki frelsissvipt vegna stöðu foreldra.
„Við krefjumst þess jafnframt að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins og endurskoði afstöðu sína í samræmi við samþykkta stefnu flokksins um mannúð, réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett,“ segja þau að lokum.