Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands gagnrýnir frá ýmsum hliðum þá sem segjast ætla að segja já í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi til að sjá hvers lags aðildarsamningur að Evrópusambandinu geti staðið Íslandi til boða. Slík rök standist ekki og að slíku verði hlegið innan Evrópusambandsins. Hann leggur einnig áherslu á það sé engin formleg eða lagaleg trygging fyrir því að fari svo að aðildarviðræður yrðu teknar upp og að út úr þeim komi aðildarsamningur að slíkur samningur yrði þá lagður fyrir þjóðina, til samþykktar eða synjunar.
Ólafur Ragnar: „Það er það sem þú segir“