Ólafía Þórunn greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum um helgina. Þar birti hún mynd af stúlkunni á tánum í fallegum prjónafötum.
„26. október 2026 💕 Litla prinsessan er komin til okkar! 🥰“ skrifaði hún við færsluna.
Ólafía Þórunn og Thomas hafa verið saman um árabil og giftu sig í Fríkirkjunni árið 2024.
Ólafía var kjörin Íþróttamaður ársins á Íslandi 2017 eftir að hafa náð besta árangri íslensks kylfings sem atvinnumaður þegar hún komst inn á LPGA-mótaröðina. Hún varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari og varð Evrópumeistari í golfi í blandaðri liðakeppni ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur, Birgi Leifi Hafþórssyni og Axel Bóassyni 2018.
Hún er eini íslenski kylfingurinn til að leika á öllum fimm risamótunum í keppnisgolfi kvenna og lagði keppniskylfurnar á hilluna árið 2022 eftir farsælan feril.