Meginorsök umferðarslyss á Suðurlandsbraut í desember þar sem kona um áttrætt lést er sú að bíl var ekið yfir á rauðu ljósi.
Þrjár aðrar orsakir eru einnig taldar til í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Sú fyrsta er að ökumaðurinn sagði athugunarleysi sitt við akstur hafa orðið til þess að hann hafi hvorki veitt umferðarljósunum né konunni athygli. Önnur er sú að bíllinn var lítið eitt yfir löglegum hámarkshraða, á 53,5 kílómetra hraða þar sem er 50 kílómetra hámarkshraði. Loks er nefnt að lampi í ljósastaur við slysstað var bilaður og gönguleiðarlýsingin yfir slysstað því aðeins um fjórðungur þess sem Reykjavíkurborg setur sem viðmið.
Konan var að fara yfir gangbraut á Suðurlandsbraut þegar slysið varð. Fram kemur í skýrslunni að hún beið eftir grænu ljósi og gekk svo af stað. Þá var bílnum ekið yfir gangbrautina á rauðu ljósi og lenti hann á konunni.
Konan var flutt á sjúkrahús með fjöláverka. Þar lést hún tveimur dögum síðar.
Rannsóknarnefnd setur fram eina tillögu í öryggisátt vegna slyssins. Hún beinir því til veghaldara að yfirfara þjónustuferla og viðmið vegna viðhalds og birtu lampa við gönguleiðalýsingar á höfuðborgarsvæðinu.
Nefndin setur það einnig fram sem mikilvæga ábendingu að ökumenn eigi skilyrðislaust að stöðva bifreið sína á rauðu ljósi. Það sé til að auka umferðaröryggi gangandi vegfarenda og koma í veg fyrir árekstra og slys.