Bent hefur verið á ákveðin vandamál með sæti í nýjum Airbus-vélum Icelandair og vinnur félagið nú að úrbótum í samstarfi við framleiðanda sætanna. Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Varðar sætin í nýju Airbus-vélunum
Samkvæmt félaginu hafa vissulega komið upp ákveðin vandamál sem tengjast sætunum, en unnið er markvisst að lagfæringum.
„Við höfum unnið að ýmsum úrbótum með sætaframleiðandanum og gerum ráð fyrir að fá betrumbætt sæti með næstu vélum sem við fáum afhentar,“ segir í svari félagsins.
Einnig kemur fram að unnið sé að því að bæta þau sæti sem þegar eru í notkun.
„Jafnframt er verið að bæta núverandi sæti jafnt og þétt í samstarfi við sætaframleiðandann,“ segir í svarinu.
Athugasemdir frá farþegum
Athugasemdir varðandi sætin í nýju vélunum hafa komið frá farþegum sem hafa bent á talsvert ónæði, til að mynda brak og bresti, þannig að hreyfingar fólks og stillingar sætanna fari ekki framhjá samferðafólki.
Icelandair hefur á undanförnum misserum tekið í notkun nýjar Airbus-vélar sem eru hluti af endurnýjun flugflota félagsins. Með tilkomu þeirra hefur verið lagður grunnurinn að betri rekstri félagsins, meðal annars með því að minnka eldsneytisnotkun.
Nýju vélarnar eru einnig taldar auka þægindi farþega og bæta vinnuumhverfi áhafnar, ekki síst hvað varðar hávaða.