Átta listar eru í framboði á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum í ráðhúsinu. Þátttakendur eru:
- Þórhallur Jónsson fyrir Akureyrarlistann
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn
- Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-listann
- Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn
- Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn
- Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir fyrir Viðreisn
- Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir VG
Um 20.000 manns búa á Akureyri og hefur fjölgað um tæplega þúsund frá síðustu kosningum. Meirihluta í bæjarstjórn mynda fulltrúar L-listans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
Umsjónarmenn eru Anna Kristín Jónsdóttir og Valgeir Örn Ragnarsson.