Ísraelsher segist hafa vegið Mohammed Odeh, nýjan leiðtoga hernaðararms Hamas, á þriðjudag. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu hersins og innri öryggisþjónustunnar Shin Bet.
Ísraelsmenn hafa skipulega lagt til atlögu að leiðtogum Al-Qassam-sveitanna og Odeh er sá fjórði sem Ísraelsmenn segjast hafa fellt frá upphafi stríðsins á Gaza. Varnarmálaráðherrann Israel Katz sagði herinn hafa sent Odeh til fundar við samverkamenn sína í iðrum vítis.
Ezzedine al-Haddad, forveri Odehs, var drepinn ásamt fjölskyldu sinni 15. maí. Hann var talinn lykilmaður í hryðjuverkaárásinni á Ísrael 7. október 2023. Í yfirlýsingu hernaðararmsins segir að eiginkona Odehs og þrjú uppkomin börn hafi einnig farist píslarvættisdauða í árás Ísraelshers. Þau voru borin til grafar í Gazaborg í gær.
Ísrael ræður enn yfir 60 prósentum Gaza-strandarinnar og öllum innkomuleiðum þangað. Ásakanir um brot á vopnahlénu hafa gengið á víxl milli Hamas og Ísraelshers síðan það tók gildi í október. Síðan þá hefur herinn drepið minnst 900 Palestínumenn samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda á Gaza.