Ný tilkynning: Líðan Haraldar konungs óbreytt

Ný tilkynning: Líðan Haraldar konungs óbreytt

Ný tilkynning: Líðan Haraldar konungs óbreytt

Norska hirðin hefur gefið út nýja tilkynningu. Í henni segir að líðan Haraldar konungs sé óbreytt.

Í morgun var tilkynnt að heilsu hans hafi hrakað og að ástand hans sé mjög alvarlegt. Konungurinn hefur verið á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló undanfarna tíu daga vegna blóðsýkingar.

Glöggir lesendur sjá kannski að það er komið streymi hér að ofan. Þetta er beint streymi frá konungshöllinni í Osló þar sem fólk hefur safnast saman og mörg lagt niður blómvendi.

Það virðist stöðugt streymi þangað af fólki.

Norska ríkisútvarpið NRK er með útsendingu á NRK1 og á vefnum, þar er ekki fjallað um neitt annað en Harald konung.

Rætt er við fólk víða um land og mörg eru sammála um að hann sé bæði traustur og alþýðlegur.

Hákon krónprins og Mette-Marit krónprinsessa eru farin heim af spítalanum. Börn þeirra Ingiríður Alexandra og Sverrir Magnús einnig.

NRK greinir frá þessu en vitnar í Verdens Gang.

Masud Gharahkhani, forseti Stórþingsins, er lentur í Noregi. Hann var í heimsókn hér á Íslandi en fór fyrr heim. Marius Høiby, stjúpsonur Hákons krónprins, er farinn af spítalanum, líklega heim til sín því þar á hann að vera með ökklaband.

Høiby var í sumar dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.

Ástríður prinsessa og eldri systir konungs er ekki lengur á sjúkrahúsinu. Hún fór þaðan um 12:30 að íslenskum tíma. NRK greinir frá þessu.

Fólk streymir enn að konungshöllinni í Osló og sífellt bætist í blómahafið þar. Hér er myndskeið frá höllinni.

  • Haraldur konungur er þungt haldinn og norska hirðin segir stöðuna alvarlega.
  • Norska hirðin notar alla jafna yfirvegað orðfæri í tilkynningum en svo er ekki nú.
  • Konungsfjölskyldan hefur safnast saman á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló.
  • „Við verðum að búa okkur undir það versta,“ segir Bjørn Tore Gjertsen sem er yfirlæknir blóðsjúkdómadeildar á öðrum spítala í Noregi.
  • Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hætti við fyrirhugaða heimsókn til Þýskalands.
  • Fólk hefur safnast saman við konungshöllina í Osló og lagt þar blómvendi.

Fólk er tekið að safnast saman við konungshöllina og leggja þar blómvendi. Ein þeirra er Gørild Grande sem NRK ræddi við. Hún komst við þegar hún talaði um Harald konung.

„Mér datt í hug að ég gæti sýnt góðum konungi virðingu og kærleika,“ segir Grande.

Fréttamaður spyr hana hver Haraldur konungur sé fyrir henni. „Hann er maður sem sameinar landið, sameinar þjóðina. Hann tekur tillit til allra og sýnir öllum kærleika. Hvort sem þú ert strákur sem elskar strák eða stelpa sem elskar stelpu. Það segir mikið um þann mann sem hann hefur að geyma.“

Þess má geta að Haraldur konungur vakti heimsathygli með ræðu sem hann hélt fyrir tíu árum þar sem hann talaði hástöfum meðal annars fyrir réttindum hinsegin fólks og innflytjenda.

Hákon krónprins hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu upp á síðkastið heldur frekar eiginkona hans Mette-Marit krónprinsessa og stjúpsonur Marius Borg Høiby.

Sjálfur er Hákon vinsæll í Noregi. Þótt vinsældir konungsfjölskyldunnar í heild sinni hafi farið dvínandi þá fær Hákon persónulega góða einkunn frá þjóðinni, yfirleitt um 9 af 10 mögulegum.

Hákon er fæddur 20. júlí 1973 og er sonur Haraldar konungs og Sonju drottningar. Hann er tveimur árum yngri en Marta Lovísa prinsessa en hann er ríkisarfinn vegna þess að lögum um ríkiserfðir var ekki breytt fyrr en árið 1990. Aðeins eftir 1990 gátu konur erft krúnuna jafnt sem karlar. Hákon var fæddur krónprins og lögin ekki afturvirk.

Frá unga aldri hefur Hákon haft áhuga á vatnaíþróttum, útiveru og tónlist. Hann hefur reynt að samþætta útivist við störf sín og hann fór til að mynda í göngu að gosstöðvunum við Fagradalsfjall ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta þegar hann kom til Íslands árið 2022.

Árið 2001 giftist hann Mette-Marit Tjessem Høiby sem þá varð krónprinsessa Noregs. Mette-Marit var einstæð móðir af alþýðuættum og ekki voru allir Norðmenn sáttir við ráðahaginn. Þau eiga tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru prinsessu sem er fædd 2004 og Sverri Magnús prins sem er fæddur 2005.

Ákveðið ferli fer í gang þegar konungur deyr í Noregi, til dæmis er almenningi og fjölmiðlum ekki tilkynnt andlátið umsvifalaust.

Áður en það er gert skal öll nánasta fjölskylda látin vita. Forvígismenn ríkisstjórnar, forsætisráðherra og lykilstarfsmenn hirðarinnar eru upplýstir á undan almenningi og þá gildir einu á hvaða tíma sólarhrings konungur andast.

Formlega séð verður krónprinsinn konungur á sama augnabliki og konungur andast. Noregur má ekki verða án þjóðhöfðingja.

Hann tilkynnir ríkisstjórninni andlát föður síns formlega og konungsnafnið á ríkisráðsfundi sem halda þarf umsvifalaust.

Hefðbundin krýning var afnumin í Noregi snemma á 20. öld en nýr konungur og drottning verða blessuð í Niðarósdómkirkju í Þrándheimi nokkrum mánuðum eftir valdatökuna.

Norskir miðlar fylgjast grannt með öllu sem gerist. Hér er myndskeið af konungsfjölskyldunni mæta á spítalann í morgun.

Meira af Jonasi Gahr Støre forsætisráðherra Noregs. Hann hefur hætt við ferð til Þýskalands í dag. Þar átti hann að mæta á fundi og vinnukvöldverð með Friedrich Merz kanslara Þýskalands.

Þá ætlar Masud Gharahkhani, forseti norska þingsins, að fara fyrr heim frá Íslandi. Hann kom hingað í gær til þess að taka þátt í fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og átti að fara heim á morgun. Nú reynir hann að komast heim sem allra fyrst.

Ólöf Ragnarsdóttir er mætt á vaktina og segir ykkur helstu tíðindi frá Noregi fram eftir degi.

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, sendi Haraldi konungi kveðju á sjúkrahúsið í dag.

Hann sagði það hafa djúp áhrif á sig að heilsu konungs hefði hrakað. Hann sagðist senda konungi og fjölskyldu hans hlýjar kveðjur fyrir sína hönd og þjóðarinnar. Støre sagðist jafnframt fullviss um að konungur nyti góðrar meðferðar og umhyggju á ríkisspítalanum.

Með þessum tíðindum kveður Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ólöf Ragnarsdóttir tekur við stjórninni á þessari fréttavakt.

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu, er mættur á ríkissjúkrahúsið í Ósló þar sem Haraldur konungur liggur þungt haldinn. Vårt land greindi frá komu hans og birti mynd.

Høiby var í sumar dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.

Konungsfjölskyldan hefur safnast saman á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló vegna versnandi heilsu Haraldar konungs.

Bjørn Tore Gjertsen er yfirlæknir blóðsjúkdómadeildar við Haukeland-háskólasjúkrahúsið. Norska ríkisútvarpið NRK fékk hann til að leggja mat á ástand Haraldar út frá þeim upplýsingum sem hafa verið gefnar út.

„Ef við lítum til aldurs hans og þess sem við vitum um veikindasögu hans þá held ég að við verðum að horfast í augu við að þetta er mjög alvarlegt og að við verðum að búa okkur undir það versta.“

Gjertsen segir að hár aldur konungs hjálpi ekki til því hann setji því hömlur hvað sé hægt að gera til að bæta heilsu hans. Yfirlæknirinn sagði þó að konungur væri á besta mögulega stað, ríkisspítalinn væri með mjög góða deild á heimsmælikvarða til að meðhöndla blóðsjúkdóma.

Haraldur konungur er fimmti norski konungurinn sem ber það nafn. Hann fæddist 21. febrúar 1937, sonur Ólafs krónprins og Mörthu krónprinsessu.

Haraldur fór í útlegð ásamt fjölskyldu sinni þegar Þjóðverjar hernumu Noreg 1940 og ólst upp hluta ævinnar í Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Haraldur keppti í siglingum á þrennum Ólympíuleikum, frá 1964 til 1972.

Haraldur varð krónprins 1957 þegar Hákon afi hans lést og Ólafur faðir hans varð konungur. Haraldur varð konungur 17. janúar 1991, fyrir 35 árum. Haraldur varð fyrsti konungur Noregs frá 1380 sem fæddist sjálfur í Noregi.

Haraldur giftist Sonju Haraldsen 1968 og eiga þau tvö börn, Hákon krónprins og Mörthu Lovísu prinsessu. Ólafur konungur, faðir Haraldar, var í fyrstu tregur til að samþykkja hjónabandið því Sonja er ekki af konungsættum.

Norska ríkisútvarpið NRK leitaði til Ole-Jørgen Schulsrud-Hansen, sérfræðings í málefnum norsku konungsfjölskyldunnar, og fékk hann til að rýna í tilkynningu hirðarinnar um heilsu konungs.

Schulsrud-Hansen sagði að alla jafna notaðist hirðin við yfirvegað orðfæri í tilkynningum sínum. Nú vekti athygli að hún notaði afdráttarlaus og sterk orð í tilkynningu og segði ástand konungs mjög alvarlegt.

Hann segir að þetta valdi sér áhyggjum því fólk hafi vonast til að fyrri orð um að ástand konungs væri stöðugt væru enn í fullu gildi. Nú virðist það ekki lengur eiga við.

Haraldur konungur hefur lengi glímt við heilsubrest. Í febrúar var hann lagður inn á sjúkrahús meðan hann var í fríi á Tenerife og síðan fluttur heim til Noregs.

Haraldur var lagður inn á spítala í Ósló 17. ágúst vegna blóðsýkingar og hefur dvalið þar síðan.

Hákon krónprins, Mette-Marit krónprinsessa, Sonja drottning og Sverrir Magnús prins eru komin á sjúkrahúsin til að vera hjá konuningum.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um heilsufar Haraldar Noregskonungs.

Norska hirðin tilkynnti í morgun að heilsu konungs hefði hrakað enn og að ástand hans væri mjög alvarlegt. Krónprinsinn og drottningin hafa aflýst öllum þeim viðburðum sem þau áttu að taka þátt í.

Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

#haraldar #konungs #líðan #tilkynning #óbreytt


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-08-27-ny-tilkynning-lidan-haraldar-konungs-obreytt-484969

📰 Aðrar fréttir

Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 1
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 1
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 1
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 1
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 1
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 1
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 1
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 2
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 2
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 1
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 2
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 2
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 3
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 3
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 3
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
📅 11.10.2026 👁️ 1
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
Police received credible information about possible attacks against Donald Tusk and his defence minister.
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 3
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 3
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 3
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 3
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 3
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 2
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera till...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 3
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 3
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
📅 11.10.2026 👁️ 3
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu...
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
📅 11.10.2026 👁️ 3
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn
Frakkland: Múslimir í óeirðum kyrja rapplag sem hyllir skrímslið er myrti gyðingabörn Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Myriam Monsonego. M...
Páfinn á leið í aðgerð
📅 11.10.2026 👁️ 3
Páfinn á leið í aðgerð
Leó páfi XIV er á leið í aðgerð á næstu dögum. Hnúður fannst á lunga hans við reglubundna læknisskoðun nýlega.Páfinn tilkynnti þetta á Péturstorginu í...
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús - Vísir
Flóðið hreif með sér hús og brýr auk þess að valda skemmdum á hluta vatnsaflsvirkjunar að sögn yfirvalda. Um fimmtíu manns hefur verið bjargað af bökk...
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
📅 11.10.2026 👁️ 3
Ósætti á Suðurlandi vegna fyrirhugaðra komugjalda
Fólk í sveitarstjórnum og ferðaþjónustu á Suðurlandi er ósátt við áformað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn.„Það sem við h...
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Í beinni: Niðurstöður Samtalsins kynntar
Niðurstöður „Samtalsins“ svokallaða eru kynntar í Hörpu í dag.Spurningin „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ var rædd víða um land í gær. Öllum...
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda - Vísir
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú f...
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
📅 11.10.2026 👁️ 3
Singapore Grand Prix result: Max Verstappen wins from Charles Leclerc with Kimi Antonelli third
Red Bull's Max Verstappen secures his first win in the Singapore Grand Prix, ahead of Charles Leclerc and Kimi Antonelli.
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
📅 11.10.2026 👁️ 3
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði Barry ManilowGoðsögnin hefur glímt við veikindi Mynd: LEON BENNETT / GETTY IMAGES VIA AF...