Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

Danski lyfjarisinn Novo, sem hafði þá nýverið breytt nafninu sínu úr Novo Nordisk, hélt markaðsdag 21. september. Forsvarsmenn fyrirtækisins sögðust hlakka til að kynna framtíðaráform sín og vera sannfærðir um að framtíðin væri björt. Ekki væri samt nóg að starfsmennirnir væru einhuga, það þyrfti líka að sannfæra alla hina.

„Þetta byrjar með smá sögu, þar sem við segjum hvert við ætlum að fara, hvernig við ætlum að komast þangað og, það sem meira máli skiptir, hvernig ætlið þið að veita okkur aðhald á þeirri leið,“ sagði Mike Doustdar forstjóri fyrirtækisins. Fyrir áhugasama er sex tíma upptaka frá þessum degi á Youtube. Styttri útgáfa af því fylgir hér síðar.

En aðeins að sögu fyrirtækisins. Daninn August Krogh fékk Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1920. Ári seinna var honum boðið til Bandaríkjanna að halda fyrirlestur um störf sín. Þá var nýfarið að nota insúlín í meðferð við sykursýki. Það vakti áhuga Augusts og eiginkonu hans Marie, sem var með sykursýki.

Þegar þau komu heim til Danmerkur fengu þau leyfi til að framleiða insúlín fyrir Danmerkurmarkað og var fyrirtækið Nordisk Insulinlaboratorium stofnað árið 1923. Krogh réð tvo bræður til að koma upp framleiðslunni en þeir hættu síðar hjá fyrirtækinu og hófu sjálfir að framleiða insúlín í vökvaformi. Utan um það var stofnað fyrirtækið Novo Therapeutisk Laboratorium árið 1925. Fyrirtækin voru alltaf í nánu samstarfi um rannsóknir og framleiðslu og sameinuðust loks 1989. Þá hétu þessi fyrirtæki Nordisk Gentofte og Novo Industri, en urðu Novo Nordisk við sameininguna.

Tímamót urðu þegar insúlínframleiðsla fyrirtækjanna tveggja komst inn á Bandaríkjamarkað um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Eftir sameininguna varð til stærsti insúlínframleiðandi í heimi en á þeim tíma buðu þeir einnig lyf til að nota í meðferð gegn til dæmis sjaldgæfum blóðsjúkdómum og skorti á vaxtarhormónum. Sykursýkislyfin voru þó lífæð fyrirtækisins.

En þegar uppgötvaðist að sykursýkislyf hentuðu til annarra nota sprakk fyrirtækið út. Lyfið sem gerði Novo Nordisk að alvörurisa á lyfjamarkaðnum var Ozempic, ætlað til meðferðar við sykursýki 2. Það kom fyrst á markað 2017 og fékk sama ár markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Árið eftir bættust Evrópa og Asía við.

Fljótlega uppgötvaðist að lyfið hefði aðra verkun, þyngdarstjórnun. Ástæðan er að lyfið inniheldur semaglútíð sem er efni sem líkir eftir náttúrulegu hormóni í þörmunum. Meltingin verður hægari og heilinn fær merki sem dregur úr hungurtilfinningu og löngun í mat.

Fregnir af þessari aukaverkun fóru eins og eldur í sinu um netheima og eftirspurnin var eftir því. „Við getum alla vega sagt að það er engum blöðum um það að fletta að þetta er byltingarkennt lyf,“ segir Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Hún rifjar upp þegar lyfið kom fyrst á markað. „Þá kemur læknir til okkar að kynna okkur þetta nýja undralyf sem er á leið á markað. Nú skyldum við aldeilis fara að búa til pláss í kælinum því þetta yrði næsta tímamótalyfið. Og ég hugsaði bara: „Hvað er hann að tala um?“ Lyf koma og fara og það er ekkert til sem er eitthvað töfralyf. En núna tekur þetta ótrúlega mikið pláss í kælunum.“

Fyrir fólk með sykursýki fólst byltingin í beinni virkni lyfsins. „Það sem er sérstakt við þetta lyf er að það þarf bara að nota það einu sinni viku sem er mjög gott út frá „meðferðarheldni“, svo við tölum hreint lyfjafræðimál. Það eru meiri líkur á fólk noti lyfið rétt vegna þess að það þarf sjaldnar að nota það.“

Kostur Ozempic umfram önnur sykursýkislyf er að það líkir meira eftir náttúrulegum viðbrögðum líkamans þegar glúkósi fer í blóðið. Þar með hefur það fleiri verndandi áhrif en lyfin sem komu á undan.

„Það verða alls konar áhrif“

Sigurbjörg segir þetta vera lyfið sem margir hafi beðið eftir og eftirspurnin hafi verið eftir því. Þegar slík lyf koma fram hafi það áhrif á samfélagið og heilbrigðiskerfið. „Það verða alls konar áhrif. Ég var aðeins að skoða tölur um hjáveituaðgerðir, magaermi og annað slíkt. Þeim snarfækkar í kjölfarið því að fólk getur allt í einu farið á lyfjameðferð í staðinn fyrir að leggjast undir hnífinn. Önnur afleiðing er að þetta eru lyf sem kalla á eftirfylgd og fræðslu og þá eykst álagið á heilbrigðiskerfi hvað það varðar að allt í einu þarf að veita meiri upplýsingagjöf til sjúklinga sem áður var ekki eins mikil þörf á.“

Þetta kallar á breytingar í heilbrigðiskerfinu sjálfu. „Þetta er svolítið eins og að stýra stóru skipi eins og Titanic. Þegar á að breyta öllu kerfinu og fá fleiri heilbrigðisstéttir að borðinu þá tekur það langan tíma. Við vitum öll að það er þörf á þessu en við erum rosalega lengi að beygja í þá átt. En ég held að fólk sé opið fyrir því.“

Skortur vakti siðferðislegar spurningar

Mikil eftirspurn leiddi til þess að bera fór á skorti á lyfinu og þá vaknaði sú spurning hverjir ættu að hafa forgang. Sykursýki getur verið lífshættuleg án meðhöndlunar og ofþyngd getur verið það líka þó að hættan sé öðruvísi og oft ekki jafn bráð.

„Við lyfjafræðingar sem störfum í lyfjabúðum höfum enga heimild til að forgangsraða sjúklingahópum og það myndaðist svolítið ástand í samfélaginu vegna þessa,“ segir Sigurbjörg. „Það koma tveir sjúklingar en bara ein pakkning er til. Annar er með sykursýki og hinn á meðferð við þyngdarstjórnun. Hvorum átti að gefa pakkninguna? Og siðferðislega stóð maður frammi fyrir þessum tveim einstaklingum og vildi að sjálfsögðu láta þann sem er með sykursýki fá pakkninguna. En sá sem er með þyngdarstjórnina var á undan í röðinni og hefur raunverulega heimild til að forgangsraða og þetta var allt í einu svona flókið lagalegt mál.“

Sigurbjörg segir Novo Nordisk ekki hafa gert sér grein fyrir því að eftirspurnin yrði svona mikil. „Lyfjaþróun tekur 20 ár með alls konar prófunum. Framleiðandinn vonar auðvitað að hans lyf sé besta lyfið, skilurðu, og setur það ekki á markað án þess að trúa því. En maður gerir sér aldrei grein fyrir því hversu mikil eftirspurn verður eftir lyfinu eða hvað lyfjaframleiðandinn við hliðina á er að framleiða. Þannig að maður veit aldrei hvort margar milljónir pakkninga seljast eða hvort salan byrjar rólega og þróast svo.“

Þessi mikla eftirspurn varð til þess að Novo Nordisk setti á markað sérstaka þyngdarstjórnunarútgáfu af lyfinu sem kallaðist Wegovy. Það fékk markaðsleyfi í Bandaríkjunum 2021 en er í raun sama lyfið og Ozempic.

Þessar miklu vinsældir höfðu mikil áhrif á afkomu og verðgildi Novo nordisk. Vöxtur þess á árunum 2023 og 2024 var ævintýralegur. Gengi bréfa var um 50 í september 2022 en var komið í næstum því 143 í júní 2024, sem er hátt í þreföldun. Fyrirtækið var þá orðið 658 milljarða dollara virði sem gerði það að verðmætasta fyrirtæki í Evrópu. Við skulum setja þessar stærðir aðeins í samhengi því það er nokkuð sem Danir þurftu að gera þegar vöxturinn var hvað ævintýralegastur.

Hagspár fylgja gengi Novo Nordisk

Þessi tala, 658 milljarðar dollara, var þá 2% hærri en samanlögð verg landsframleiðsla Danmerkur. Ekki kannski alveg jafn mikið og stærð íslensku bankanna í hlutfalli við landsframleiðslu fyrir hrun en vakti samt áhyggjur hagfræðinga eins og síðar verður rakið. Árið 2024 stóð fyrirtækið undir 11% af öllum hagvexti Danmerkur.

Og ef við tökum minna dæmi þá hefur vöxturinn líka haft áhrif á bæinn Kalundborg, 16 þúsund manna bæ á Sjálandi, þar sem Novo Nordisk hefur verið með starfsemi í yfir 60 ár og framleiðir meðal annars helminginn af því insúlíni sem fyrirtækið selur. Frá 2011 hafa skatttekjur sveitarfélagsins tífaldast og efnahagur þess stækkaði um 27% árið 2022.

Um 28 þúsund manns vinna hjá fyrirtækinu í Danmörku og hagfræðingar telja hvert starf þar skapa 3-4 afleidd störf.

Á þriðja ársfjórðungi 2025 jókst verg landsframleiðsla um 2,3% í Danmörku. Þetta er mikil aukning fyrir einn ársfjórðung og var þá sú mesta í landinu í fjögur ár. Þessi vöxtur var aðallega drifinn af lyfjaframleiðslu og vöxturinn í henni kom nánast eingöngu frá Novo Nordisk. Ef lyfjaiðnaðarins hefði ekki notið við hefði landsframleiðslan aðeins aukist um 0,7% á þessum ársfjórðungi.

Novo Nordisk á því mestan þátt í að danskt efnahagslíf hefur búið við meiri vöxt en efnahagslíf víðast hvar annars staðar í Evrópu. Árið 2024 greiddi fyrirtækið danska ríkinu 2,3 milljarða bandaríkjadala í tekjuskatt.

Danskar hagspár eru nánast farnar að fylgja gengi Novo Nordisk og danska hagstofan er meira að segja farin að gefa út tvær hagspár, með og án Novo Nordisk. Og annað dæmi: Þegar Novo Nordisk tilkynnti í ágúst í fyrra að draga myndi úr söluaukningu á seinni helmingi ársins lækkaði efnahagsráðuneytið hagvaxtarspá sína fyrir árið um helming, niður í 1,4%

Markaðir hafa heldur ekki farið varhluta af stærð Novo Nordisk. Ávöxtun lífeyrissjóða, fjárfestingar heimila og hlutabréfavísitölur voru mjög næmar fyrir breytingum á lyfjarisanum. Og það þrátt fyrir að Danir séu með alls konar framleiðslu á sínum snærum eins og flutningafyrirtækið Maersk, drykkjarvörufyrirtækið Carlsberg og leikfangaframleiðandann Lego sem öll starfa á alþjóðamarkaði. En þau og önnur alþjóðleg fyrirtæki í Danmörku auka vissulega þol efnahagslífsins fyrir niðursveiflu Novo Nordisk þrátt fyrir stærð þess.

Og ekki var vanþörf á, því á síðasta ári var farið að halla undan fæti hjá Novo Nordisk. Og ástæðuna er hægt að rekja til þess þegar fyrirtækið fékk alvöru keppinaut á markaði þyngdarstjórnunarlyfja.

Bandaríska fyrirtækið Eli Lilly setti sykursýkislyfið Mounjaro á markað árið 2022 og þyngdarstjórnunarlyfið Zepbound kom ári síðar. Smátt og smátt fór Eli Lilly að höggva skörð í söluna hjá Novo Nordisk og um mitt ár 2025 var það komið fram úr.

Zepbound var komið með 59% markaðshlutdeild í þyngdarstjórnunarlyfjum meðan Wegovy var með tæp 40%, og á seinni hluta árs 2025 höfðu hlutabréf í fyrirtækinu lækkað um næstum því 50%. Á þriðja ársfjórðungi þess sama árs tilkynnti fyrirtækið í fyrsta sinn um samdrátt í sölu milli ársfjórðunga og reglulega voru gefnar út afkomuviðvaranir á árinu sem voru sagðar til komnar vegna samkeppnisaðstæðna í Bandaríkjunum.

Undanfarið ár hefur 16% starfsmanna, eða um 13 þúsund manns, verið sagt upp störfum.

Varað við „Nokia“ áhrifum

Meðan velgengni Novo Nordisk var sem mest vöruðu nokkrir hagfræðingar við svokölluðum Nokia-áhrifum. Þar var vísað í finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia sem stóð undir 4% af vergri landsframleiðslu. Þegar fyrirtækið fór á hausinn leiddi það af sér minni efnahagsvöxt og fækkun starfa um nokkur þúsund í Finnlandi.

Og spurningin var einföld: Ef eitt fyrirtæki á svo stóran hluta í hagvexti einnar þjóðar, hvað gerist þegar fer að halla undan fæti hjá því fyrirtæki?

Svarið var að finna í tölum um verga landsframleiðslu. Þið munið að á þriðja ársfjórðungi jókst hún um 2,3% í Danmörku, á þeim fjórða var vöxturinn aðeins 0,2%. Og þá hafði lyfjaiðnaðurinn dregist saman um 1,1%.

Hagnaður Novo Nordisk árið 2025 var 102 milljarðar danskra króna – sem var met – en það var samt minna en forsvarsmenn fyrirtækisins höfðu spáð í upphafi þess árs. Þegar uppgjörið var kynnt var jafnframt boðað að bæði hagnaður og sala myndu dragast saman á árinu 2026.

Slíkt tilkynning hafði aldrei komið frá fyrirtækinu. Þegar þessi tilkynning var birt 4. febrúar féllu hlutabréf þess í verði um 18% á einum degi, sem er mjög mikið.

En aftur að markaðsdegi Novo í september þar sem framtíðaráformin voru kynnt. Meðal þeirra er að setja á markað fimm söluvænleg lyf á ári til ársins 2030 sem ná bæði yfir þyngdarstjórnunarlyf, lyf við sykursýki og önnur lyf. Þá ætlar fyrirtækið að koma á nýju sölukerfi með lyfseðilsskyld lyf sem sé betur sniðið að neytandanum. Þá setur fyrirtækið sér það markmið að vaxa um um það bil 5% á ári á þessum tíma. Hlutabréfaverð féll í verði eftir þennan dag.

En einn helsti ásinn sem Novo telur sig eiga uppi í erminni til framtíðar er lyfið Wegovy í töfluformi, sem kom á markað í sumar og er nokkuð ódýrara en í sprautupennanum sem hingað til hefur verið algengasta formið. Á móti hefur framleiðsla aukist. Doustdar segir fyrstu merki lofa góðu og verið sé að finna jafnvægið milli framleiðslu og verðs.

Sigurbjörg segir lengri tíma áhrif á heilbrigðiskerfið geta verið mikil með áframhaldandi notkun lyfjanna. En hvernig þau verða sé erfitt að segja til um.

„Eina sem get sagt er að væntanlega mun byrði á heilbrigðiskerfinu minnka vegna ákveðna áhættutengdra sjúkdóma sem koma beint í kjölfarið á ofþyngd en ég er bara spennt að fylgjast með og sjá hvert þetta mun leiða okkur.“

Hver eru mörkin á þörf fyrir lyfin?

En það er erfitt að skilja við þetta umfjöllunarefni án þess að tæpa á gagnrýni á lyfin Ozempic og Wegovy. Meðal annars er talað um að þetta séu inngrip í líkamsstarfsemi og erfitt sé að hætta á þeim því þá komi þyngdin sem hafi tapast til baka og jafnvel rúmlega það.

Sigurbjörg segir hugsanlegt að taka þurfi lyfið ævilangt þó að það liggi ekki fyrir. Siðferðisspurningar lyfjafræðinga um lyfið séu þó af öðrum toga.

„Á meðan ávinningurinn af þessari lyfjameðferð er miklu meiri en möguleg áhætta á því að þurfa að vera á lyfinu ævilangt þá er þetta ekki endilega spurning sem við þurfum að velta fyrir okkur, nema fyrir einstaklinga sem þurfa ekki á lyfinu að halda. Það er siðferðisleg spurningin sem vaknar miklu meira í samfélagi lyfjafræðinga. Hvar drögum við mörkin fyrir því hvenær viðkomandi þarf á lyfinu að halda og hvenær ekki?“

Sigurbjörg segir vel skilgreint í ráðleggingum frá framleiðanda hvar mörkin liggja.

„En samfélagið virðist vera æstara í lyfið en framleiðandinn ætlaði sér. Og þá er spurningin: hvenær erum við farinn að fara út fyrir okkar eigin ramma sem segir að þetta lyf sé gagnlegt og við eigum að nota það fyrir tilekna hópa? Eftirspurnin er það mikil að hópar sem að uppfylla ekki þessi skilyrði vilja líka fá lyfið. Og ég held að þetta snúist miklu meira um hvar siðferðiskennd okkar liggur. Auðvitað er hver og einn einstaklingur að hugsa um sig en það er ekkert lyf í heiminum sem er bara fullkomið. Allt sem virkar hefur líka einhver aukaverkanir og við verðum bara að pæla í því og passa okkur og vera skynsöm.“

#krossgötum #nordisk #novo #vexti #ævintýralegum


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-11-01-novo-nordisk-a-krossgotum-ur-aevintyralegum-vexti-i-50-hrun-a-verdmaeti-490409

📰 Aðrar fréttir

King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
📅 05.11.2026 👁️ 1
King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
The monarch faced questions on the UK's involvement in the slave trade during his Caribbean tour.
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
📅 05.11.2026 👁️ 1
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
Hálfbróðir Meghan Markle, Thomas Markle yngri, hefur nú komið til tals í rannsókn á föður þeirra, Thomas Markle eldri, vegna vörslu barnakláms. Rannsa...
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd fyrir að troða eigin skít upp í munn eiginmanns síns. Konan hefur ítrekað beitt hann líkamlegu og andlegu o...
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason veltir fyrir sér hvað vaki fyrir blaðamönnum Morgunblaðsins með myndbirtingu við frétt sem birtist í blaðinu í dag fi...
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
📅 05.11.2026 👁️ 1
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur mildað refsingar þeirra 548 sem voru í dauðadeild í ríkinu. Þeir hljóta í staðinn lífstíðarfangelsi. Talan...
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
📅 05.11.2026 👁️ 1
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og þá er, að vissu leyti, uppi lagaleg óvissa í ofanálag.Forstjóri ÁTVR, Þorg...
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
Síðustu þrjá daga hefur Guðlaugur, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sent tíu fyrirspurnarskjöl á mismunand...
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
📅 05.11.2026 👁️ 1
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur orðið við kröfu fyrrum eiganda íbúðar á efri hæð í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði um að fella úr gildi ákv...
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
📅 05.11.2026 👁️ 1
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
Eigendum húsa sem byggð voru á árunum 1924 til 1940 er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur fy...
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
Á síðu yfirkjörstjórnar Iowa má sjá að Armstrong fékk 4.602 atkvæði og Keith Jones, mótframbjóðandi hans, fékk 3.737 atkvæði. Demókratar náðu ekki mei...
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
Úkraínumenn fagna niðurstöðu þingkosninga í Bandaríkjunum í vikunni og vonast eftir meiri stuðningi þaðan. Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, vonar ...
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
📅 05.11.2026 👁️ 1
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
Undanfarið hafa börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára víðs vegar um land fengið bóluefni gegn inflúensu með nefúða í stað sprautu. Það er léttir bæ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
Sögurnar gerast í Múmíndal, þar sem fjölskyldan býr í bláa múmínhúsinu og tekur jafnan vel á móti gestum. Múmínálfarnir hafa lifað góðu lífi í bókum, ...
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.Bóka...
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
📅 05.11.2026 👁️ 1
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
Documents were published in March and June - but others were withheld because they were part of a police investigation.
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
📅 05.11.2026 👁️ 1
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
Erfðadeilur systkina enduðu fyrir Landsrétti eftir að faðir þeirra hafði reynt að gera son sinn arflausan.
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu í dag. Þar segir að frá fimm í morgun til fimm í dag hafi 121 mál verið skráð í kerfi lögreglunna...
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðin...
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
📅 05.11.2026 👁️ 1
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
California has historically had the largest population of death row inmates in the US.
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
📅 05.11.2026 👁️ 1
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
California has historically had the largest population of people on death row in the US.
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
📅 05.11.2026 👁️ 1
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
Fyrstu vikur vetrar hafa verið nokkuð mildar víða um land. Norðlendingar njóta góðs af tíðinni og sinna bústörfum utandyra eða spila golf í blíðunni. ...
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
📅 05.11.2026 👁️ 1
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti t...
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
📅 05.11.2026 👁️ 1
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er rætt um að draga þurfi úr vægi verðtryggingar og í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur fyr...
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
📅 05.11.2026 👁️ 1
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
The US first lady was credited by all for playing a key though unspecified role in the ceasefire.
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í þrettánda skipti í veislusalnum Grósku. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við ...
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
📅 05.11.2026 👁️ 1
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
Rúm 63% þeirra sem voru á framfærsluaðstoð Reykjavíkurborgar á síðasta ári eru með erlent ríkisfang.Þar af eru flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma P...
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
Bankinn, sem heitir Ueno Bank, hefur fryst sparnað milljóna íbúa Paragvæ og í kjölfarið hafa fjölmargir mótmælt á götum landsins. Samkvæmt Reuters hef...
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna birti langa yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagði Íransstríðið vera ástæðu þess að Repúblikanar tö...
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
📅 05.11.2026 👁️ 1
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
BBC Verify has been analysing messages after flights across Europe were targeted by fake bomb threats - the second such incident this week.
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 2
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 3
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 2
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 3
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 1
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
📅 05.11.2026 👁️ 1
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
The doctor tested positive in DR Congo, where there is an outbreak. The government says the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 3
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 3
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
📅 05.11.2026 👁️ 1
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
Brand is told to expect a prison sentence "of some length" and faces more rape allegations, it can now be reported.
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
📅 05.11.2026 👁️ 3
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag Stefnt er að arðr­greiðslum til eig­enda fast­eigna­fé­lags­ins sem leigir meðal ann­ars hús­næði til h...
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Dave fyrrum bassaleikari Wham kemur fram á Íslandi: „George bjó yfir ótrúlegum tónlistarhæfileikum“
Dave West fyrrum bassaleikari Wham! kemur fram á tónleikunum Celebrating George Michael sem fara fram í Hofi 20. nóvember og Hörpu kvöldið eftir 21. n...
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tuttugu og sex á fjár­hags­að­stoð nær allan ára­tuginn - Vísir
Þetta kemur fram í greiningu velferðarsviðs á fjárhagsaðstoð á árunum 2016 til 2025 sem kynnt var í velferðarráði í gær. Hún var unnin að beiðni endur...
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Jódís og Sverrir takast á um líflátshótanirnar: „Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa“
Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, svarar Sverri Helgasyni fullum hálsi í nýrri Facebook-færslu. „Ég nenni ekki að hlusta á þenna...
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Þau þrjú verja Ís­land gegn ESA - Vísir
Þrír lögmenn hafa verið fengnir til að annast undirbúning málsvarnar Íslands vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu vegn óful...