Til að horfa á sólmyrkva án þess að setja augun í hættu er nauðsynlegt að nota sérhæfð og vottuð sólmyrkvagleraugu eða þær tegundir rafsuðuglers sem hleypa minnstu ljósi í gegnum sig og hafa skuggatölu á bilinu 12 til 14. Þetta kemur fram í nýju svari á Vísindavefnum við spurningunni um hvort fólk geti búið til sín eigin sólmyrkvagleraugu.
Í svarinu segir að bláar og útfjólubláar ljóseindir sólarljóssins séu hættulegastar.
„Augu okkar skynja hvorki útfjólublátt ljós né innrautt ljós. Við verðum því ekki vör við þegar sterkt ljós á þessum litrófsbilum skemmir augun fyrr en það er um seinan. Minniháttar skemmdir geta stundum gengið til baka, en alvarlegri skemmdir þýða varanleg blinda.“
Gömul gleraugu geta reynst varasöm
Sólmyrkvagleraugu eru venjulega með filmu úr fjölliðum sem kallast Mylar, að því er segir í svari Vísindavefsins. Hún er lögð þunnri málmhúð til að deyfa gegnskin ljóss.
„En málmhúðin er viðkvæm og rispast auðveldlega við núning. Þá opnast ljósraufar sem fyrr eða síðar gera hlífðargleraugun gagnslaus og falska vörn. Því er óráðlegt að nota gömul hlífðargleraugu sem hafa legið óvarin í geymslu, án þess að gæðaprófa þau fyrst með því að setja síurnar fyrir sterkan ljósgjafa. Ef ljósir punktar eða rákir sjást á síunum eru þær ónýtar og skal fargað.“
Það er óhætt að segja að margir bíði spenntir eftir almyrkva á sólu sem sést hér á landi 12. ágúst. Það eru ekki bara landsmenn sem bíða spenntir eftir náttúrufyrirbærinu heldur er fjöldi ferðamanna væntanlegur til landsins gagngert til þess að berja sólmyrkvann augum.