Vinnuvélar eru í startholunum á svokölluðum Traðarreit vestari í Kópavogi, skammt frá Hamraborg. Þar á að rífa fjölmörg hús á næstunni í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.
Verktakinn Jáverk er ekki enn kominn með niðurrifsleyfi en það er í ferli hjá Kópavogsbæ. Undanfarið hefur gróður verið fjarlægður af lóðunum, fjöldi trjátegunda, runna og fjölærra plantna sem nú er að finna á opnu svæði í norðausturhorni Lundarhverfis, í Kópavogsdal og í Trjásafninu í Meltungu austast í Fossvogsdal.