Netflix hefur fjárfest 16.500 milljarða króna síðasta áratuginn

Netflix hefur fjárfest 16.500 milljarða króna síðasta áratuginn

Netflix hefur fjárfest 16.500 milljarða króna síðasta áratuginn

Framleiðslufyrirtækið og streymisveitan Netflix hefur fjárfest yfir 135 milljarða bandaríkjadala í kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum á síðastliðnum 10 árum. Upphæðin, sem samsvarar 16.500 milljörðum íslenskra króna, er meira en þreföld verg landsframleiðsla Íslands árið 2025.

Greint er frá þessu á nýjum vef fyrirtækisins, the Netflix Effect eða Netflix-áhrifin.

Vefurinn var settur á laggirnar í tilefni þess að 10 ár eru liðin síðan þjónustusvæði streymisveitunnar margfaldaðist í stærð og fór úr 60 löndum í tæp 200. Á vefsíðunni eru ýmis töluleg gögn um Netflix tíunduð eins og upplýsingar um fjárfestingar fyrirtækisins, samfélagsáhrif og áhorf.

Netflix heldur alla jafna upplýsingum sem þessum nokkuð þétt að sér. Gefst nú tækifæri til að rýna í ýmislegt varðandi streymisveituna, sem er sú vinsælasta í heiminum.

Fyrirtækið heldur því fram að viðskipti þess hafi búið til 325 milljarða bandaríkjadala virðisaukningu fyrir alþjóðlega hagkerfið. Upphæðin samsvarar rétt tæpum 40.000 milljörðum íslenskra króna sem jafngildir áttfaldri vergri landsframleiðslu Íslands í fyrra.

Bæði framleiða og kaupa

Á vefsíðu Netflix-áhrifanna segir að um þrír af hverjum fjórum titlum á streymisveitunni séu ekki framleiddir af Netflix, heldur sé sýningarréttur þeirra keyptur.

„Við kaupum rétt að sýningum á kvikmyndum og þáttaröðum frá kvikmyndaverum, sjónvarpsstöðvum, ríkismiðlum og sjálfstæðum framleiðslufyrirtækjum um víða veröld. Það gefur notendum okkar meira af því efni sem þeir dá og dýrka og styður við höfunda svo þeir geti haldið áfram að framleiða fleiri þáttaraðir og kvikmyndir,“ segir á vefsíðunni.

Fyrirtækið hafi átt í viðskiptum við yfir 3000 fyrirtæki um kaup á sýningarrétti. Í þessu samhengi má benda á að þeir 135 milljarðar bandaríkjadala sem Netflix hefur varið í fjárfestingar ná bæði til framleiðslu fyrirtækisins, svo sem House of Cards, Stranger Things og Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, og til kaupa á sýningarrétti.

Góður árangur á skömmum tíma

Á síðastliðnum 10 árum hafa titlar sem framleiddir eru af Netflix fengið yfir 1.700 tilnefningar til Óskars-, Emmy-, Grammy-, Golden Globes- og BAFTA-verðlauna. Af þessum tilnefningum hafa yfir 350 þeirra hlotið verðlaun.

Tólf kvikmyndir úr smiðju Netflix hafa fengið tilnefningu fyrir bestu kvikmynd á Óskarsverðlaunahátíðinni. Fyrirtækið hefur átt kvikmynd í flokknum á hverju ári síðan 2019. Það framleiddi til að mynda tvær kvikmyndir sem tilnefndar voru á síðustu Óskarshátíð; Frankenstein og Train Dreams.

Þó hefur engin kvikmynd sem framleidd er af Netflix fært leikstjóra sínum styttuna fyrir bestu kvikmynd enn sem komið er.

Þá hafa 11 kvikmyndir sem framleiddar eru af Netflix verið tilnefndar sem besta teiknimynd á Óskarnum. Kvikmynd Guillermo Del Toros um Gosa sigraði í flokknum árið 2023 og KPop Demon Hunters gerði það í ár.

Síðari teiknimyndin fjallar um suður-kóreskar poppstjörnur sem berjast við djöfla og tröll. Hún er einhver stærsti sigur Netflix-streymisveitunnar síðan fyrirtækið hóf að framleiða eigin þætti árið 2013 með þáttaröðinni House of Cards.

KPop Demon Hunters er sú kvikmynd sem hefur flest áhorf á Netflix, yfir 500 milljónir. Þá hefur lag úr henni, Golden, notið gífurlegra vinsælda. Höfundar lagsins fengu Óskarsverðlaun í ár fyrir besta frumsamda lagið en hlustað hefur verið á það í yfir milljarð skipta á streymisveitum. Þá sat albúm með tónlistinni úr kvikmyndinni í efsta sæti Billboard 200-listans í tvær vikur.

Umsvif um allan heim

Fyrirtækið segir streymisveituna hafa haft mikil samfélagsleg áhrif síðustu 10 ár. Bókanir á flugferðum til Suður-Kóreu hafi til að mynda aukist um fjórðung eftir að KPop Demon Hunters var gefin út.

Þá segir að framleiðsla á vegum fyrirtækisins hafi skapað störf fyrir yfir 425 þúsund manns á tímabilinu.

„Áhrif okkar eru ekki aðeins alþjóðleg. Hver framleiðsla Netflix er líka staðbundin framleiðsla sem skapar störf og styður við vöxt fyrirtækja hvar sem við störfum,“ segir á vefsíðu Netflix-áhrifanna.

Fyrirtækið hafi komið að framleiðsluverkefnum í yfir 50 löndum og á álíka mörgum ólíkum tungumálum. Verkefnin nái til yfir 4.500 bæja og borga um víða veröld.

Netflix oft komið hingað til lands

Óhætt er að segja að þessara áhrifa hafi gætt hérlendis. Fyrsta Netflix-þáttaröðin sem var tekin upp á Íslandi voru þættirnir Sense8 sem hófu göngu sína árið 2015. Síðan þá hafa framleiðslur fyrirtækisins á borð við þáttaraðirnar Lost in Space, The Witcher: Blood Origins og Black Mirror og kvikmyndina Heart of Stone haft viðkomu hérlendis.

Þá hefur Netflix sömuleiðis komið að íslenskri framleiðslu eins og þriðju seríu af Ófærð, uppistandi Ara Eldjárns, Pardon My Icelandic, og Kötlu, sjónvarpsþátta Baltasars Kormáks og Sigurjóns Kjartanssonar.

Á vefsíðu Netflix segir það vekja löngun hjá fólki að heimsækja staði sem það sér í kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum. Vinsældir Háafoss í Þjórsárdal stórjukust eftir að fossinn vakti athygli í lokaþætti Stranger Things. Þá sagði Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri afþreyingarefni hafa töluverð áhrif á vinsældir Íslands sem komustaðar.

#fjárfest #hefur #króna #milljarða #netflix

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-26-netflix-hefur-fjarfest-16500-milljarda-krona-sidasta-aratuginn-474936

📰 Aðrar fréttir

Minnst sex fórust og þar af níu ára stúlka - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 0
Minnst sex fórust og þar af níu ára stúlka - Vísir
Ísraelsher viðurkenndi að hafa gert árás á svæðið og sagði að skotmarkið hefði verið „innviðir hryðjuverkamanna“, án þess að útskýra það nánar. Síðar ...
Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og á­rásir enn nær dag­legt brauð - Vísir

Two men die after trying to save children at Seaton Carew beach
📅 12.07.2026 👁️ 0
Two men die after trying to save children at Seaton Carew beach
Cleveland Police says the children are confirmed to be safe.
Tilkynningum til barnaverndar fækkar á milli ára
📅 12.07.2026 👁️ 0
Tilkynningum til barnaverndar fækkar á milli ára
Tilkynningum til barnaverndar fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins samanborið við fyrri ár. Alls bárust 4.812 tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum á...
„Mikill sómi af hegðun ökumanna“
📅 12.07.2026 👁️ 0
„Mikill sómi af hegðun ökumanna“
Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi segir búið að leysa úr vandanum á Suðurlandsvegi þar sem bíll með hjólhýsi í eftirdragi lenti utan vegar. Umferð inn...
Útboð á gerð fótboltavallar við Kórinn mögulega ólöglegt
📅 12.07.2026 👁️ 0
Útboð á gerð fótboltavallar við Kórinn mögulega ólöglegt
Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kröfu Kópavogsbæjar um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna verks við aðalvöll íþróttafélagsins HK í K...
Sektuðu í grennd við Símamótið - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Sektuðu í grennd við Símamótið - Vísir
„Það er búið að vera svolítið eftirlit með umferð. Það hefur gengið ágætlega,“ segir Jón Þór Karlsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgars...
Kathy Griffin frumsýnir nýja kærastann – Aldursmunurinn er sláandi
📅 12.07.2026 👁️ 1
Kathy Griffin frumsýnir nýja kærastann – Aldursmunurinn er sláandi
„Hann er 22 ára. Hafðu það internet,“ segir grínistinn Kathy Griffin í færslu á samfélagsmiðlum. Ekki kemur fram hvað maðurinn heitir eða hvað hann ge...
Major incident declared in Wales as wildfires burn across UK
📅 12.07.2026 👁️ 1
Major incident declared in Wales as wildfires burn across UK
Residents near the Conwy fire have been evacuated, with at least 10 other fires across the UK this weekend.
Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir
Málmar i í túrtöppum taldir skaðlausir „Þó að snef­il­magn af málm­um sé til stað­ar í túr­töpp­um, þá er magn­ið sem losn­ar við notk­un of lít­ið ti...
„Við erum að svara kalli tímans“ - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
„Við erum að svara kalli tímans“ - Vísir
„Okkur er nauðugur einn kostur, við erum að svara kalli tímans,“ segir Ómar Garðarsson, ristjóri dagblaðsins Eyjafrétta. „Við erum að feta sömu braut ...
Holta­vörðu­heiði lokað - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
Holta­vörðu­heiði lokað - Vísir
Holtavörðuheiði er lokuð vegna umferðaróhapps. Löng bílaröð hefur myndast.
Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Búið að opna Holta­vörðu­heiði aftur - Vísir
Að sögn lögreglunnar fauk hjólhýsi á hliðina á norðanverðri heiðinni og hindraði umferð um veginn. Mjög hvasst var á svæðinu og viðbragðsaðilar komu á...
Miklar umferðartafir á Hellisheiði og Holtavörðuheiði
📅 12.07.2026 👁️ 2
Miklar umferðartafir á Hellisheiði og Holtavörðuheiði
Miklar umferðartafir eru frá Hveragerði til Reykjavíkur. Á Hellisheiði lenti bíll utan vegar á leið til höfuðborgarsvæðisins með hjólhýsis í eftirdrag...
Um­ferðar­teppa á Hellsiheiði vegna umferðaróhapps - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Um­ferðar­teppa á Hellsiheiði vegna umferðaróhapps - Vísir
Þetta kemur fram í á umferðin.is, vefsíðu Vegagerðarinnar. Á mynd af vettvangi má sjá að fellihýsi virðist hafa fokið af veginum. Jón Þór Karlsson, lö...
Um­ferðar­teppa á Hellis­heiði vegna umferðaróhapps - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Um­ferðar­teppa á Hellis­heiði vegna umferðaróhapps - Vísir
Þetta kemur fram á umferðin.is, vefsíðu Vegagerðarinnar. Á mynd af vettvangi má sjá að fellihýsi virðist hafa fokið af veginum. Jón Þór Karlsson, lögr...
Fleiri skjöl um dularfull flygildi birt: „Þessi ríkisstjórn mun leita sannleikans“
📅 12.07.2026 👁️ 1
Fleiri skjöl um dularfull flygildi birt: „Þessi ríkisstjórn mun leita sannleikans“
Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna birti fjórða bunkann af skjölum um dularfull flygildi á vefsíðu sinni í fyrradag.Skjölin má finna hér.Nýbirtu skjölin...
Mikil vonbrigði ef þrjú kynferðisbrot hafi átt sér stað á Kótelettunni
📅 12.07.2026 👁️ 2
Mikil vonbrigði ef þrjú kynferðisbrot hafi átt sér stað á Kótelettunni
Þrjú kynferðisbrot tengd hátíðarhöldum á Selfossi í nótt eru til rannsóknar lögreglu. Öll brotin tengjast hátíðarhöldum Kótelettunnar þó að þau hafi e...
Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grinda­vík - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grinda­vík - Vísir
„Þetta verða tímamót,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður bæjarráðs Grindavíkur. Í lok janúar var auglýst eftir forskráningum í skóla í Grindavík ...
Andrew Flintoff's Top Gear crash passenger sues BBC Studios
📅 12.07.2026 👁️ 1
Andrew Flintoff's Top Gear crash passenger sues BBC Studios
Expert driver Paul Rees is claiming personal injury, which BBC Studios is disputing.
Leikarinn frægi óþekkjanlegur í nýju hlutverki
📅 12.07.2026 👁️ 1
Leikarinn frægi óþekkjanlegur í nýju hlutverki
Mörgum brá í brún að sjá myndir af leikaranum Brian Cox í hjólastól. Óttuðust margir að hann væri að glíma við alvarlegan heilsubrest eða þá að ellike...
Björn Jón skrifar: Hvað þætti Ara fróða um ESB?
📅 12.07.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Hvað þætti Ara fróða um ESB?
Mynd Einn áhugaverðasti angi Evrópusambandsumræðunnar eru raddir framliðinna.
„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir
„Eins og staðan er í kerfinu núna þegar að hátt í fimmtíu prósent drengja eru að útskrifast eftir tíu ára grunnskólagöngu með svo slæman lesskilning a...
Valkostir Íslands í breyttum heimi
📅 12.07.2026 👁️ 1
Valkostir Íslands í breyttum heimi
Valkostir Íslands í breyttum heimi Í breytt­um heimi hafa lít­il ríki eins og Ís­land ástæðu til að hafa áhyggj­ur og meta hvernig best verði tryggt ö...
Hvalur skaut up kollinum í Hólma­vík - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Hvalur skaut up kollinum í Hólma­vík - Vísir
Í myndbandinu í spilaranum hér að neðan má sjá hnúfubakinn á sundi í nálægð við Hólmavík, líklega í leit að fæðu.  Hvalurinn stingur upp kollinum og b...
Mælirinn segir 33 gráður - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Mælirinn segir 33 gráður - Vísir
Ferðavagnar hafa verið á fleygiferð um götur Egilsstaða í dag þar sem ferðalangar eru ýmist að koma sér aftur heim eftir heita helgi fyrir austan eða ...
David Willey, esteemed BBC foreign correspondent, dies aged 93
📅 12.07.2026 👁️ 1
David Willey, esteemed BBC foreign correspondent, dies aged 93
Willey is best known for covering the Vatican, and reported on five popes during his long career.
David Willey, esteemed BBC Vatican correspondent, dies aged 93
📅 12.07.2026 👁️ 1
David Willey, esteemed BBC Vatican correspondent, dies aged 93
One of the BBC's longest-serving foreign correspondents, he reported on five popes during his career.
Vísundur kastaði ferðamanni hátt upp í loftið í Yellowstone – sjáðu myndbandið
📅 12.07.2026 👁️ 1
Vísundur kastaði ferðamanni hátt upp í loftið í Yellowstone – sjáðu myndbandið
Ferðamaður slasaðist alvarlega þegar vísundur réðst á hann á Bridge Bay-tjaldsvæðinu í Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Árásin náðist á myndb...
Maður fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn
📅 12.07.2026 👁️ 1
Maður fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn
Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn snemma í morgunsárið. Vegfarandi gekk fram á manninn og gerði lögreglu viðvart...
Steiney frum­sýnir kærastann - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
Steiney frum­sýnir kærastann - Vísir
„Helgi er 40 ára í dag. Hann gerir heiminn svo miklu skemmtilegri. Alltaf til í grín og ævintýri en líka að hlusta og staldra við,“ skrifar Steiney á ...
ESB afturkallar 300 milljóna króna styrk Feneyjatvíæringsins vegna þátttöku Rússa
📅 12.07.2026 👁️ 2
ESB afturkallar 300 milljóna króna styrk Feneyjatvíæringsins vegna þátttöku Rússa
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið endanlega ákvörðun um afturköllun styrks sem var veittur til Feneyjatvíæringsins í myndlist fyrir tímab...
„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu - Vísir
„Mín skoðun er sú að þetta val, það er að segja þessi krafa um að deila valdi með Evrópusambandinu, er miklu takmarkaðra heldur en einhvern veginn umr...
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er
📅 12.07.2026 👁️ 1
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er Mynd­list­ars­kon­an og bún­inga- og leik­mynda­hönn­uð­ur­inn Þór­unn Elísa­bet Sveins­dótt­ir fékk...
Aþena dregur lið sitt úr deildinni - Brynjar Karl skýtur fast á nýja meirihlutann í borginni
📅 12.07.2026 👁️ 1
Aþena dregur lið sitt úr deildinni - Brynjar Karl skýtur fast á nýja meirihlutann í borginni
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, tilkynnir að liðið verði dregið úr Bónusdeildinni. Skýtur hann föstum skotum á nýjan ...
Second suspect arrested for jewellery store robbery in Gran Canaria
📅 12.07.2026 👁️ 1
Second suspect arrested for jewellery store robbery in Gran Canaria
A second man has been arrested in connection with the armed robbery of a jewellery shop at Centro Comercial El Mirador, the National Police Corps has ...
The Tenerife beaches worth visiting before everyone else finds them
📅 12.07.2026 👁️ 1
The Tenerife beaches worth visiting before everyone else finds them
Tenerife has earned its reputation as one of Europe's most popular island destinations, welcoming millions of visitors every year with its year-round ...
Lögregla handtók sextán ökumenn: „Duglegt fólk á vaktinni“
📅 12.07.2026 👁️ 1
Lögregla handtók sextán ökumenn: „Duglegt fólk á vaktinni“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ellefu ökumenn í gærkvöld og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna og fimm ökumenn fyri...
Aþena dregur lið sitt úr Bónusdeildinni – Brynjar kennir Reykjavíkurborg um
📅 12.07.2026 👁️ 1
Aþena dregur lið sitt úr Bónusdeildinni – Brynjar kennir Reykjavíkurborg um
Körfuknattleiksfélagið Aþena hefur ákveðið að draga meistaraflokk sinn úr Bónusdeild kvenna, þrátt fyrir að liðið hafi aðeins tapað einum leik í 1. de...
Hillsborough Law set to be approved by MPs before summer break
📅 12.07.2026 👁️ 1
Hillsborough Law set to be approved by MPs before summer break
The crush at the 1989 FA Cup semi-final between Liverpool and Nottingham Forest left 97 fans dead.
Man dies after being pulled unconscious from hotel pool in Fuerteventura
📅 12.07.2026 👁️ 1
Man dies after being pulled unconscious from hotel pool in Fuerteventura
A man has sadly died from drowning after being rescued from the swimming pool of a hotel in Esquinzo, in the municipality of Pájara, on the island of ...
Kynferðisbrot og líkamsárás til rannsóknar eftir Landsmót hestamanna
📅 12.07.2026 👁️ 1
Kynferðisbrot og líkamsárás til rannsóknar eftir Landsmót hestamanna
Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar tvö mál eftir Landsmót hestamanna á Hólum um helgina, kynferðisbrot og líkamsárás sem var hvort tveggja tilky...
Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun
📅 12.07.2026 👁️ 1
Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun
Bretar eru almennt mun hrifnari af Ruslatunnugreifanum, Count Binface, en öfgahægri manninum Nigel Farage. Þetta sýnir ný skoðanakönnun.Í nýrri könnun...
Brendon McCullum sacked as England Test head coach but will retain white-ball role
📅 12.07.2026 👁️ 1
Brendon McCullum sacked as England Test head coach but will retain white-ball role
England are now without a Test head coach and captain as Brendon McCullum leaves after four years in the role.
Fjörutíu og þrjú börn skráð í skóla í Grindavík næsta haust
📅 12.07.2026 👁️ 1
Fjörutíu og þrjú börn skráð í skóla í Grindavík næsta haust
Ráðning kennara við leik- og grunnskóla í Grindavík er á lokametrunum segir formaður bæjarráðs. Fjörutíu og þrjú börn setjast á skólabekk í bæjarfélag...
„Hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust“

Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér!
📅 12.07.2026 👁️ 2
Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér!
Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér! Fréttin12. júlí 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus Valsson, RitskoðunLeave a Comment Júlíus Valsson ...
Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd
📅 12.07.2026 👁️ 1
Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd
Norska flugfélagið Norwegian hefur staðið við veðmál sitt við breska flugfélagið British Airways og breytt um forsíðumynd á Instagram-reikningi sínum....
Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi
📅 12.07.2026 👁️ 2
Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi
Núverandi kirkjugarður á Selfossi við bakka Ölfusár og rétt hjá kirkjunni er langt kominn með að fyllast og því hafa bæjaryfirvöld í Árborg verið að l...
World Cup 2026: What to expect from semi-finals including Kylian Mbappe, Lamine Yamal, Jude Bellingham and Lionel Messi
📅 12.07.2026 👁️ 1
World Cup 2026: What to expect from semi-finals including Kylian Mbappe, Lamine Yamal, Jude Bellingham and Lionel Messi
France face Spain and England take on Argentina in heavyweight World Cup semi-final meetings - here's what to expect from the last four.