Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur birt vel á þriðja tug skjala er varða samskipti milli stjórnar Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins í tengslum við uppsögn Harðar Arnarsonar. Þeirra á meðal er umtalað minnisblað Harðar.
Nefndin bíður enn eftir gögnum frá Landsvirkjun en Bryndís Haraldsdóttir, formaður nefndarinnar, segir að fyrirtækið hafi gefið vilyrði fyrir því að þau verði birt. Hluti gagnanna frá Landsvirkjun, til að mynda fundargerðir, er trúnaðargögn. Bryndís segir að þar sem til standi að halda opinn nefndarfund með fjármálaráðherra í næstu viku hafi þess verið óskað að trúnaðargögn verði ekki afhent nefndinni fyrr en eftir þann fund.
Hörður sagði upp störfum í lok september og kynnti starfsfólki Landsvirkjunar ákvörðun sína þann 1. október. Lítið fékkst uppgefið um ástæður uppsagnarinnar annað en að uppsögnin tengdist ágreiningi um stjórnarhætti. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ítrekaði það í óundirbúnum fyrirspurnartíma þann 19. október og sagði að það væri sagan öll.
2. nóvember greindi RÚV frá því að ágreiningurinn hafi snúist um það sem Hörður taldi vera óeðlileg afskipti stjórnar og ráðuneytis af starfsemi Landsvirkjunar. Þær áhyggjur hafði hann útlistað í minnisblaði til stjórnar þann 15. júní sem fréttastofa fékk afhent ásamt öðrum gögnum á grundvelli upplýsingalaga. Stjórnarandstæðingar vilja meina að Daði Már hafi sagt þinginu ósatt um ástæður uppsagnarinnar og hóf stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd athugun á samskiptunum í kjölfarið.
Gögnin sem nefndin birti eru þau sömu og fréttastofa fékk afhent í byrjun nóvember. Er þar að finna umrætt minnisblað Harðar, lögfræðiálit sem Áslaug Árnadóttir lögmaður skrifaði fyrir stjórn Landsvirkjunar til að bregðast við minnisblaði Harðar, innanhússsamantekt fjármálaráðuneytisins um téða samskiptaörðugleika auk minnisblaða og tölvupóstsamskipta svo eitthvað sé nefnt.
Í bréfi fjármálaráðuneytisins vegna gagnabeiðni nefndarinnar segir að ráðuneytinu hafi borist upplýsingar um athugasemdir Harðar í símtali stjórnarformanns við starfsmann fjármálaráðuneytisins 26. júní. Stjórnarformaðurinn hafi upplýst að óskað hefði verið eftir lögfræðiáliti en ekki þótti tilefni til frekari ráðstafana á þessum tímapunkti.
Það var svo 28. ágúst sem stjórn Landsvirkjunar óskaði eftir fundi með ráðherra til að ræða þá stöðu sem upp er komin. Í áðurnefndri innanhússsamantekt kemur glögglega fram að nánast ekkert traust er á milli Harðar og stjórnarinnar.
48 fundir á 17 mánuðum
Í bréfi ráðuneytisins segir enn fremur að samskipti þess við stjórn Landsvirkjunar séu sambærileg við samskipti við önnur ríkisfyrirtæki. Síðastliðna 17 mánuði hafi ráðuneytið hitt stjórnir stærstu ríkisfyrirtækjanna samtals 48 sinnum. Þeir fundir hafi meðal annars fjallað um eigendastefnu, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun, arðsemi og arðgreiðslur. Sjö þessara funda voru með stjórn Landsvirkjunar.
Þá er jafnframt vikið að ofangreindum ummælum ráðherra á Alþingi 19. október í bréfi ráðuneytisins. Segir að í svari ráðherra hafi verið talað um almennar stjórnunaráherslur sem lutu að eðli ágreiningsins. Ráðherra hafi staðfest að engar fyrirætlanir hafi verið um sölu fyrirtækisins og að ágreiningurinn hefði hvorki snúist um það né stefnu Landsvirkjunar eða arðgreiðslukröfur. „Svörin fólu hins vegar eðli máls samkvæmt ekki í sér ítarlega lýsingu á þeim athugasemdum sem fram höfðu komið eða samskiptum aðila í tilefni þeirra,“ segir í bréfinu.