Fjölmennt viðbragðslið var kallað út rétt fyrir klukkan 20 í kvöld eftir að steypubíll fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun og hafnaði í ánni.
Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir voru kallaðar á vettvang ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var einn í bílnum og náði hann af sjálfsdáðum að koma sér út og upp á bílinn þar sem hann beið björgunar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á bráðamóttöku Landspítalans.
Aðgerðum er að mestu lokið en enn á þó eftir að ná bílnum upp úr ánni.
Fréttin hefur verið uppfærð.