Lögreglan leiddi mann í járnum út úr fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs fyrr í dag, líkt og sést á meðfylgjandi myndskeiði.
Greint hefur verið frá því að lögreglunni hafi borist tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Var tilkynningin þess eðlis að brugðist var hratt við og viðbúnaður mikill.
Nokkrir lögreglubílar voru sendir á vettvang ásamt sérsveitarbílum og tveimur sjúkrabílum. Fjölmennt lögreglulið var því á vettvangi.
Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra, staðfestir í samtali við mbl.is að sérsveitin hafi aðstoðað lögreglu við aðgerðina í dag.
Lögreglan hefur girt af svæði stórt svæði á Kársnesinu, en ekki hafa fengist upplýsingar um hvers eðlis tilkynningin var.
Myndskeið/Justinas Púkys



