Troðfyllt var út úr dyrum og glatt á hjalla er Miðflokkurinn í Reykjavík opnaði kosningaskrifstofu sína í Austurveri í gær.
Þar fór oddvitinn, Ari Edwald, með ræðu þar sem hann sagði reynslu sína af rekstri stórra fyrirtækja þýða að hann viti upp á hár hvað þurfi svo rekstur borgarinnar verði heilbrigður á ný með tilheyrandi létti á rekstri heimila borgarbúa. Áherslur framboðsins eru eftirfarandi:
- Burt með Borgarlínu – Miðflokkurinn vill taka upp hagkvæmt hraðvagnakerfi (Strætó) með betri vögnum og fleiri ferðum. Efla leiðarkerfi og hafa forgangsakreinar hægra megin við umferð. Prófa að hafa frítt í Strætó til þriggja ára í tilraunaskyni. Ráðast í gatnaframkvæmdir til að greiða fyrir bílaumferð. Auka afköst umferðarljósa með snjallstýringu.
- Stórbætt bílastæði – Miðflokkurinn vill endurheimta bílastæði á besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Stytta gjaldskyldu og lækka gjöld í miðbænum, t.d. úr 660 kr. í 430 kr. Flokkurinn vill fækka gjaldskyldum svæðum í hverfum borgarinnar og rýmka reglur um íbúakort. Eins vill flokkurinn fjölga bílastæðum á hverja íbúð í nýbyggingum.
- Virðing fyrir peningum borgarbúa – Miðflokkurinn vill lækka útsvar íbúa með tiltekt og ráðdeild í rekstri borgarinnar. Borgarbúar eigi að njóta hagkvæmni stærðarinnar í stað þess að stjórnsýslukostnaður sé 50 prósentum hærri en í fimm stærstu nágrannasveitarfélögunum. Grunnþjónusta við íbúa á að vera í forgangi og flokkurinn vill hætta við verkefni sem eru ekki virðisaukandi fyrir borgarbúa. Loks vill flokkurinn fækka borgarfulltrúum.
- Fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum – Miðflokkurinn vill bjóða foreldrum barna sem ekki eru með leikskólapláss við 12 mánaða aldur 250 þúsund krónur í heimgreiðslur. Eins vill flokkurinn auðvelda rekstur sjálfstæðra og vinnustaðatengdra leikskóla og gera umhverfi leikskóla heilnæmara og sleppa dyggðaskreytingum á borð við Brákarborg.
- Skólar sem skara fram úr – Miðflokkurinn vill taka upp metnaðarfull samræmd próf við lok grunnskólagöngu og stórbæta starfsaðstæður kennara svo þeir geti einbeitt sér að kennslu nemenda í stað félagsþjónustuhlutverks. Flokkurinn vill opna móttökudeildir þar sem nemandi verður að ná grunnfærni í íslensku áður en almennt nám hefst. Loks vill flokkurinn gera skólastofur að alvöru umgjörð um öfluga kennslu án áróðurs.




