Moldin sem hefur verið lögð í kantana á Nesvellinum kom úr grunni nýja fjölnota íþróttahússins hjá KR-vellinum.
Að sögn framkvæmdastjóra golfklúbbsins mun hún nýtast til að verja völlinn betur gegn áhrifum veðurs.
Verktakafyrirtækið Háhell annaðist að fjarlægja moldina úr grunni nýja fjölnota íþróttahússins við KR-völlinn og keyra möl í staðinn.
Nýtast í nágrenninu
Skarphéðinn Ómarsson, framkvæmdastjóri Háhellu, segir fljótt hafa orðið ljóst að hagkvæmast væri að finna moldinni nýtt hlutverk í nágrenninu.
„Þegar það er búið að sá í þetta, held ég að það verði fallegt grænt gras þarna eftir eitt til tvö ár sem mun nýtast golfmönnunum og gera umhverfið miklu fallegra. Það er allavega betra en að hafa grjót,“ segir Skarphéðinn í samtali við mbl.is.
Hann bendir á að eftir þessa erfiðisvinnu hafi þeir ekki tekið krónu fyrir verkið.
„Við högnuðumst á því að flytja moldina styttri vegalengd og buðum golfklúbbnum að njóta góðs af þessu kostnaðarlaust. Við vorum með vél fyrir hvern mann í tvo mánuði og bara þessi framkvæmd kostaði rúmlega 10 til 20 milljónir.“
„Moldin mun nýtast okkur vel“
Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri Nesklúbbsins, segir að moldin muni nýtast þeim vel sérstaklega eftir erfiðar veðuraðstæður á síðasta ári.
„Fyrst og fremst eftir óveðrið síðasta vetur, sem bæði eyðilagði göngustíginn í kringum golfvöllinn og dreifði grjóti yfir flötina og grasið á golfvellinum, fannst okkur tilvalið að styðja við þetta. Þegar Háhell bauð okkur að nýta moldina féllumst við á það,“ segir Haukur
Aðspurður segir Haukur að moldin geti sums staðar dregið úr slysahættu þannig að kylfingar slái ekki í göngufólk. Hún breyti hins vegar litlu fyrir þá sem vilja forðast að slá út af vellinum.
Er þetta ekki stemning fyrir KR-inga?
„Það eru margir KR-ingar í klúbbnum og nokkrir vilja meina að þeir muni njóta góðs af þessu,“ segir Haukur að lokum



