Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast
Hvíld er ekki lúxus heldur líffræðileg nauðsyn, segir Benedikt Jóhannsson, sérfræðingur í klínískri sálfræði. Svefn og hvíld séu ein af grunnstoðum góðrar heilsu og að líkamsklukkan kalli á hvíld yfir daginn. Rannsóknir sýni að hvíld skerpi einbeitingu, minni og starfsþrek. Benedikt telur að vafasamt hafi verið að afleggja kaffitíma á vinnustöðum, því starfsfólkið þurfi eftir sem áður að kúpla aðeins frá vinnu og endurnæra sig.
Mikilvægi hvíldar hefur oft gleymst, í umræðu um heilsu, þar til fyrir nokkrum árum þegar sálfræðingar sem sérhæfðu sig í svefni komu fram á sjónarsviðið og fóru að vekja athygli á þessu, að sögn Benedikts.
Svefnfræðingar hafi þó varað við síðdegisblundi, á þeim forsendum að hann geti haft áhrif á nætursvefn. „Sjálfur er ég alinn upp í sveit og þar lagði fólk sig eftir hádegismat. Eftir að ég hætti að vinna hef ég tekið upp þennan sið aftur. Þetta virkar vel fyrir mig og hefur ekki áhrif á nætursvefninn. Ég er ekkert að mæla með að fólk sofni. Sjálfur legg ég mig í 15 til 20 mínútur, ég sofna ekkert endilega en endurnærist og finn það vel.
Ég hef kynnt mér fræði og rannsóknir sem sýna að blundur eftir hádegismatinn er ákveðin náttúruleg þörf, því þegar fólk fær sér góða næringu, sækir syfja á það og þá hentar ekki vel …