Átta létu lífið og átján til viðbótar slösuðust þegar þriggja hæða bygging hrundi í Flatbush-hverfinu í Brooklyn í New York á miðvikudaginn en rústir þess féllu ofan í stóra holu við hliðina þar sem byggingarframkvæmdir voru í gangi.
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, lýsti skelfilegri aðkomu og sagði að verkamenn „sem höfðu sjálfir naumlega lifað af sneru við og grófu fórnarlömb upp úr rústunum“, er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið.
Trúði ekki eigin augum
Birna Gustavsdóttir er fædd og uppalin í borginni en hún heyrði fyrst af harmleiknum stuttu eftir að húsið hrundi. Þá voru fréttamiðlar hver á fætur öðrum að greina frá stöðu mála.
„Ég bý svona hálftíma í burtu, með lest, en ég sá þetta í símanum mínum og var í sjokki,“ segir Birna í samtali við fréttastofu Vísis.
„Um leið og ég sá hvað hafði gerst í fréttunum þá einhvern veginn trúði ég þessu ekki og ég þurfti að horfa á fréttir og virkilega sjá myndir af þessu til þess að átta mig á því sem hafði gerst af því þetta var svo ótrúlegt einhvern veginn.“
Björgunaraðgerðum lauk um sólarhring síðar, á fimmtudag, eftir að slökkviliðið hafði gengið úr skugga um að ekki væru fleiri fórnarlömb á staðnum. Ekki er ljóst hvort framkvæmdirnar á næstu lóð tengist hruninu og byggingareftirlit borgarinnar segir rannsókn enn standa yfir.
Sinnti neyðaraðstoð á svæðinu
Birna tók þátt í því að sinna neyðaraðstoð á svæðinu en það fólst meðal annars í því að útvega fólki mat og nauðsynjar.
„Á fimmtudaginn fór ég sjálf með fullt af hlutum til YMCA, í Flatbush, af því ég sá að þau voru að segja að fólk mætti koma með húðvörur og annað sem þarf og gjafakort af því fólk þarf líka að geta keypt hluti fyrir sjálft sig seinna meir,“ segir Birna en hún hafi svo séð auglýsingu þar sem leitað var að sjálfboðaliða til þess að sinna neyðaraðstoð.
„Ég sá færslu um að það vantaði eina manneskju í viðbót til að hjálpa við að útdeila mat og aðstoða á morgun svo ég sagði: Hey, ég hef unnið í kringum mat lengi svo ég get alveg komið að aðstoðað svo ég mætti næsta dag og var þarna frá 12:00 til 17:00,“ segir hún.
Það sé stór hópur fólks sem vinni enn á svæðinu, hópar slökkviliðsfólks og lögreglufólks meðal annarra, og margir þiggi það að geta fengið heita máltíð og spjallað við einhvern. Samfélagið í hverfinu sé í algjöru áfalli.
„Þarna var neyðaraðstoð fyrir fólk sem er í byggingunum við hliðina og líka hinum megin við götuna, líka fólk sem varð vitni að þessu og er kannski í áfalli sjálft og líka fólk sem er að vinna fyrir borgina við að ganga frá öllu,“ segir hún og bætir við: „Þetta var rosalegt.“
Níu ára stúlka á meðal hinna látnu
Greint var frá því skömmu eftir að húsið hrundi að von væri á stormi en Birna segir aðstæður við rústirnar hafa verið erfiðar enda skýfall í fleiri klukkustundir á föstudaginn og verulega kalt.
„Það var mjög mikill stormur, sérstaklega fyrir þennan árstíma og svo kólnaði mjög hratt og við vorum þarna úti og það var ótrúlega kalt,“ segir hún og ítrekar hversu mikið hún finnur til með þeim viðbragðsaðilum sem hafa þurft að vinna í rústunum.
Hverfið sé þekkt fyrir hátt hlutfall innflytjenda og þar búi sérstaklega margir frá Suður-Ameríku. Háttsettur embættismaður hjá lögreglunni í New York greindi frá því að fórnarlömbin væru Nicole Daniela Salvada Rodriguez, 9 ára, Juan Daniel Salvada Guzman, 31 árs, Kevin Santiago Reyes Gonzalez, 10 ára, Barry Mamadou, 23 ára, og Ndiaye Mamadou, 31 árs, er fram kemur í frétt BBC.
Hin fórnarlömbin bjuggu annars staðar. Það voru þeir Gabriel Siguencia, 22 ára, sem bjó í Bronx, Edgar Sapon, 26 ára, sem bjó í Hell's Kitchen og Jose Luis Caguana Cosquillo, sem er 26 ára, sem bjó í Bushwick-hverfinu í Brooklyn.
„Fólk var úti að hjálpa og allt það þó að það væri rosalega kalt og við vorum í þessu öll saman,“ segir Birna og bætir við „þetta var bara svo yndislegt fólk sem býr þarna í kring.“ Það hafi margir komið að fyrra bragði upp að henni og fleiri sjálfboðaliðum til að bjóða þeim regnhlífar eða aðra aðstoð.
„Það var ótrúlegt að þeir voru að tékka á okkur, þótt við værum þarna til staðar fyrir þau. Svo það segir mjög mikið um það hvernig hjartalag þetta fólk er með sem býr þarna í kring.“
Hátt í hundrað skráð brot
Þá hefur verið greint frá því í staðarmiðlum að mikil reiði kraumi meðal íbúa á svæðinu í ljósi þess að mikill fjöldi brota hefði verið skráður í tengslum við viðhald á byggingunni. Í frétt CBS um málið segir að byggingaeftirlit New York-borgar rannsaki allt og alla sem að málinu koma, þar á meðal verktakana í næsta húsi og eiganda byggingarinnar sem hrundi.
Samkvæmt húsnæðisskrám borgarinnar séu 98 óafgreidd brot skráð á eigninni, allt frá veggjalúsum til leka.
„Skrifstofa mín er einnig að kanna óhugnanlegar upplýsingar sem okkur hafa borist um eignina og eigandann, sem kann að hafa sýnt af sér vanrækslu,“ er einnig haft eftir Jumaane Williams, umboðsmanni almennings, sem sagði jafnframt að leigusalinn „kunni að hafa verið á lista okkar yfir verstu leigusalana eitt af síðustu árum.“
Birna segir auðvitað mega skynja reiði en það sé í bland við allan tilfinningaskalann sem láti á sér bera þegar svona áfall skekur samfélag. Það virðist sem flestir séu sammála um að halda minningu þeirra látnu á lofti og þá meðal annars með því að tryggja úrbætur á málum sem þessum.
„Allir sem búa í New York eiga rétt á því að búa í húsnæði sem er öruggt og sem þeir geta lifað í og alið upp börnin sín í án þess að vera hræddir um að eitthvað gerist.“