Þykkur svartur reykur hefur stigið hátt yfir borgina og sést langt að.
Íbúum hefur verið sagt að loka gluggum og dyrum og halda sig innandyra eftir því sem kostur er vegna mikils reyks.
Tuttugu slökkvibílar og um 125 slökkviliðsmenn berjast við eldinn, sem logar skammt frá Wembley leikvanginum.
Sérbúnaður fluttur á vettvang
Vegna umfangs brunans hefur sérstakur búnaður til að leggja langar vatnsslöngur verið fluttur á vettvang ásamt afkastamikilli dælu.
Búnaðurinn á að tryggja slökkviliðsmönnum meira vatn til að ráða niðurlögum eldsins, en mikill fjöldi slökkviliðsmanna vinnur nú að því að koma honum undir stjórn.
Drónasveit slökkviliðsins fylgist jafnframt með eldinum úr lofti og veitir stjórnendum aðgerðanna yfirsýn yfir útbreiðslu hans.
Myndbönd sem hafa verið birt á samfélagsmiðlum sýna þykkan reykinn breiðast yfir stóran hluta borgarinnar.
Eldurinn hefur einnig valdið mikilli röskun á neðanjarðarlestakerfi Lundúna.
Sjónarvottar segjast hafa heyrt sprengingu
Breskir fjölmiðlar hafa eftir sjónarvottum að sprenging hafi heyrst á svæðinu áður en reykjarmökkurinn reis yfir borgina.
Slökkviliðið hefur ekki staðfest að sprenging hafi orðið og ekki er enn vitað hvað olli eldinum.
Engar fregnir höfðu borist af slysum þegar fréttin var skrifuð.
Twenty fire engines and around 125 firefighters are responding to a fire on Hannah Close, Neasden.
Residents in the immediate area should close doors and windows, remaining inside where possible, due to the large amount of smoke being produced.
More info to follow https://t.co/DJNCtCh6yb
— London Fire Brigade (@LondonFire) August 28, 2026