Meðal þess sem tekið var fyrir á aukafundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær var tillaga Miðflokksins um að Ari Edwald oddviti flokksins í borgarstjórn tæki sæti í umhverfis- og skipulagsráði í stað varaborgarfulltrúa flokksins og sonar Ara, Páls Edwald.
Athygli vekur að Páll var kjörinn í umhverfis- og skipulagsráð fyrir hönd flokksins á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar fyrir átta dögum en Ari var kjörinn varafulltrúi í ráðinu en á fundinum í gær var Lárus Blöndal Sigurðsson kjörinn varafulltrúi flokksins í umhverfis- og skipulagsráði.
Það kemur ekki fram í fundargerð borgarstjórnar og ekkert var heldur minnst á það á fundinum sjálfum hvers vegna Miðflokkurinn gerði þessar breytingar eftir svo skamman tíma en líkleg skýring er sú að Páll er yfirlögfræðingur byggingarfyrirtækisins Reir verks og því ekki ólíklegt að hann hefði getað staðið frammi fyrir hagsmunaárekstrum við setu í umhverfis- og skipulagsráði.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um atvinnu Páls.