Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D-lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um samstarf á kjörtímabilinu 2026-2030. Samkomulagið, sem byggir á stefnuskrám beggja framboða, var undirritað af kjörnum fulltrúum í Samkomuhúsinu í Sandgerði í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýja meirihlutanum.
Tvö af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verða að undirbúa fyrsta fund hennar, sem er áætlaður 3. júní, og að auglýsa stöðu bæjarstjóra strax á næstu dögum.
Í samkomulaginu er áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa og bæta lífsgæði allra íbúa. Þá verður áframhaldandi vinna lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ eftir sameiningu árið 2018.
Sérstök áhersla verður lögð á að hefja uppbyggingu íþróttamannvirkja og málefni barnafólks, fatlaðra og eldri borgara.
Svavar Grétarsson, oddviti S-lista, og Haukur Andreasson, oddviti D-lista, segjast báðir leggja áherslu á gott samstarf allra bæjarfulltrúa á kjörtímabilinu og á gott upplýsingaflæði með það að leiðarljósi að allar áætlanir og eftirfylgni verði með sem besta móti.