MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðarlögum

MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðarlögum

MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðarlögum

Matvælastofnun hótaði að stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta fyrr á árinu eftir að aðstandendur fyrirtækisins gáfu lítið fyrir fjölda alvarlegra athugasemda við heilbrigði margra hesta. Sólhestar eru með starfsemi í Reykjavík og í Reykjadal.

Í erindi Matvælastofnunar til Sólhesta kemur fram að frávikin hafi verið það alvarleg að þau hafi kallað á tafarlausar úrbætur. Fallið var frá boðaðri stöðvun á eftir að úrbætur voru gerðar. Eftirlit með hestaleigunni verður tíðara í framhaldinu.

Brot Sólhesta, eða frávik, sem eru tíunduð í tíu skoðunarskýrslum frá 14. janúar til 8. apríl og fleiri skjölum, sneru einkum að slæmu holdarfari hesta sem margir þóttu alltof horaðir. Þá þótti sérstaklega ámælisvert þegar hross voru notuð í útreiðartúr þrátt fyrir að opinber eftirlitsaðili hefði bannað notkun á þeim fyrr sama dag.

Alvarleg frávik í sex af tíu skýrslum

Eftirlitsmenn MAST leggja mat á skoðunaratriði í eftirlitshandbók og skrá þau ýmist í lagi, sem frávik eða sem alvarlegt frávik. Frestir til úrbóta og beiting þvingunaraðgerða og/eða refsing ákvarðast af alvarleika brots og hvort um endurtekið brot sé að ræða.

Í sex af tíu skoðunarskýrslum voru meðal annars skráð alvarleg frávik eins og alvarleg vanfóðrun, að hross væru vöðvarýr, að eigandi eða umráðamaður hestaleigunnar gerði sér ekki grein fyrir vanfóðrun eða óheilbrigði hrossa, að hófar væru aflagaðir og brotnir og að hross næðu ekki reiðhestsholdum, það er að þau væru ekki í nægilega góðu ásigkomulagi til að þau væru setin.

Stöðvun á starfsemi boðuð

Þann 25. mars sendi MAST Sólhestum ehf. boðun um stöðvun á starfsemi hestaleigunnar vegna alvarlegra brota á dýravelferð á grundvelli laga um velferð dýra. Krafist var tafarlausra úrbóta á öllum alvarlegum frávikum sem tilgreind voru í skoðunarskýrslu sem er dagsett 19. mars.

Hætta yrði að gefa skemmt hey, gefa þyrfti hrossum nóg og bæta við kvöldgjöf. Taka þyrfti inn hross sem væru undir holdastigi 2, hætta að ofgera hestum og undantekningarlaust þyrfti að hvíla hesta sem ekki næðu holdastigi 3, væru of gamlir eða vöðvarýrir. Að lokum þyrfti að sýna fram á með óyggjandi hætti að aðstandendur Sólhesta byggju yfir þeirri hæfni og getu sem er nauðsynleg til að halda hross.

„Fram kemur í 35. gr. dýravelferðarlaga að MAST sé heimilt að takmarka eða stöðva starfsemi þegar um alvarleg tilvik eða ítrekuð brot sé að ræða eða ef aðilar sinni ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests. Það tilkynnist hér með að MAST hyggst stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta ehf vegna alvarlegra brota á dýravelferð,“ segir í bréfi MAST til Sólhesta.

Öll hrossin metin verulega vöðvarýr

Tvær skoðunarskýrslur eru dagsettar 19. mars, ein vegna eftirfylgniskoðunar og önnur vegna ábendingar eða kvörtunar. Sex alvarleg frávik voru skráð við eftirfylgniskoðunina að auki við 14 frávik.

Fjögur hross voru sögð áberandi grönn, hrossin Þrá frá Akurgerði (holdastig 2,0), Andvari frá Súluholti (holdastig 1,5), Steinríkur frá Borgargerði (holdastig 2,0) og grár óörmerktur hestur í holdastigi 2,0. Merking hrossa er einnig skráð sem frávik. Sjö af átján hrossum voru sögð fóðrast illa og þarfnast aðhalds.

Þá voru öll hrossin metin verulega vöðvarýr að baki.

„Mikil slysahætta er af bárujárnsplötum og gaddavír í hólfinu. Ekki er fullnægjandi skjól og beitin uppnöguð. Ljóst er að aðbúnaður og umhirða hrossanna er alls ekki í lagi og ljóst er að eigendur/umráðamenn gera sér ekki grein fyrir alvarlegu ástandi þeirra. Það að grennstu hrossin séu einnig á járnum segir okkur að þau séu einnig í notkun þrátt fyrir bann Matvælastofnunar.“

Síðari skoðunarskýrslan frá 19. mars er vegna ábendingar eða kvörtunar. Í henni er gerð athugasemd við að hvorki hafi verið bætt úr holdafari ákveðinna hrossa né þau tekin úr notkun.

Þegar stöðvun starfsemi Sólhesta var boðuð var vísað til þeirrar skýrslu. Í henni segir að augljóst sé að ekki sé brugðist við vanfóðrun eða óheilbrigði í hrossum Sólhesta. Hrossin séu ekki tekin úr notkun né fái sérstaka aðhlynningu vegna vanfóðrunar eða óheilbrigðis.

„Þrátt fyrir að sögn bústjóra [sic] að það sé fóðrað 4 sinnum á dag þá eru 7 af 18 hrossum sem ná ekki reiðhestsholdum og öll hin hrossin ná tæplega reiðhestsholdum. Það bendir til verulegra vankanta í búskaparháttum eða óheilbrigði í hrossunum sem eigandi/umráðamaður annaðhvort bregst ekki við og/eða að eigandi/umráðamaður býr ekki yfir nægilegri getu, hæfni né þekkingu til að halda hross,“ segir í henni.

„Við eftirlit um morgunin 19.03.2026 voru gefin fyrirmæli um að fjögur hross ættu ekki að vera í notkun. Þegar eftirlitsmenn komu aftur að hádegi sama dag játaði bústjóri að hrossin hefðu verið notuð í millitíðinni. Matvælastofnun lítur það mjög alvarlegum augum þegar ekki er farið eftir fyrirmælum.“

Sólhestar andmæla stöðvun

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður sendi MAST andmæli við boðaðri stöðvun á starfsemi Sólhesta fyrir hönd fyrirtækisins þann 8. apríl. Í andmælabréfinu er fjölda athugasemda í skoðunarskýrslum Matvælastofnunar mótmælt. Bréfið er átta blaðsíður.

Í því segir Sævar Þór umbjóðanda sinn telja skoðunarskýrslur að mörgu leyti ófullnægjandi og óáreiðanlegar. Þá finnist umbjóðandanum Matvælastofnun ekki hafa verið nógu leiðbeinandi vegna úrræða. Sólhestar hafi gripið til umfangsmikilla úrbóta og ráðstafana til að mæta kröfum stofnunarinnar auk þess að afla utanaðkomandi sérfræðiálita.

Í því segir einnig að hross hafi verið tekin úr notkun þegar farið hafi verið fram á það.

„Þá hefur verið ráðinn sérfræðingur, Gústaf Loftsson, til að tryggja að starfsemin uppfylli allar kröfur dýravelferðarlaga [...] Þessar skjótu og afgerandi ráðstafanir sýna fram á ríkan samstarfsvilja og ábyrgðartilfinningu umbjóðanda míns og ættu að leiða til þess að vægari úrræði verði fyrir valinu,“ segir í andmælabréfinu.

„Það er sérstaklega ámælisvert í þessu samhengi að boðuð stöðvun byggir á skoðunarskýrslu nr. 2951 frá 19. mars sl., þar sem úrbótafrestur fyrir skráð frávik var tiltekinn „Næsta skoðun“. Næsta skoðun fór fram hinn 24. mars, samanber skýrslu nr. 3016.

Í þeirri skoðun var hins vegar einungis litið til þeirra hrossa sem voru nýkomin á hús en vísvitandi látið hjá líða að kanna þær fjölmörgu úrbætur sem þegar hafði verið ráðist í vegna fyrri athugasemda. Að því gefnu að úrbótafrestur hafi verið bundinn við næstu skoðun, bar MAST að kanna stöðu úrbóta í þeirri skoðun.

Að senda í kjölfarið út boðun um stöðvun starfsemi daginn eftir, hinn 25. mars, án þess að hafa gefið sér tíma til að meta þær úrbætur sem gripið hafði verið til, er augljóst brot á rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Það er óforsvaranlegt að grípa til jafn íþyngjandi úrræðis og rekstrarstöðvunar án þess að kanna fyrst hvort tilefni þess sé enn fyrir hendi,“ segir í bréfinu.

Þá hafnaði fyrirtækið því að brotin hafi verið alvarleg og ítrekuð.

Fallið frá stöðvun og andmælum svarað

Þann 10. apríl sendi lögfræðingur MAST Sævari Þór bréf og greindi frá því að fallið hefði verið frá stöðvun á starfsemi hestaleigunnar Sólhesta.

„Í ljósi tiltekinna úrbóta sem gerðar hafa verið á starfsemi hestaleigunnar og einnig vegna ráðningar Gústafs Loftssonar sem bústjóra hefur MAST ákveðið að falla frá áður boðaðri stöðvun.“

12. maí sendi lögfræðingur MAST Sævari Þór svar við andmælum Sólhesta þar sem MAST gerði ýmsar athugasemdir við þau.

„Málið leystist reyndar ekki á grundvelli þeirra heldur vegna úrbóta sem tókst að ná fram með boðuðum þvingunaraðgerðum. Eftirlitsfólk MAST reynir að vanda sig eftir bestu getu í eftirliti þótt vinnubrögð þess séu að sjálfsögðu ekki hafin yfir gagnrýni,“ segir í svarinu.

Þar er rakið efni skoðunarskýrslna og brugðist við gagnrýni á atriði sem varða eftirlit.

„Í andmælunum er því einnig haldið fram að boðuð stöðvun á starfsemi Sólhesta ehf hafi talist óhófleg íhlutun í ljósi þeirra umfangsmiklu úrbóta sem félagið hefur þegar ráðist í og þeirrar samvinnu sem það hefði sýnt. Brot Sólhesta ehf hafi hvorki verið alvarleg né ítrekuð sem sé forsenda fyrir því að stöðvunarheimildinni sé beitt. Þegar MAST nýtir lagaheimild til að boða stöðvun á atvinnustarfsemi er það ekki gert af neinni léttúð. Til þess að það sé gert verða meint brot að teljast alvarleg og/eða ítrekuð.“

Þá eru rifjuð upp andmæli sem sneru að eftirliti 19. og 24. mars.

„Hið rétta er að brotin voru alvarleg (mikið af alltof grönnum hrossum) og sérstaklega ámælisvert þegar hross voru nýtt sem opinber eftirlitsaðili með dýravelferð hafði bannað notkun á, fyrr sama dag. Allar þær úrbætur sem Sólhestar ehf stóðu fyrir voru gerðar eftir að MAST steig inn í þessa atburðarás. Það virtist ekki vera nein vitneskja fyrir hendi hjá umbjóðendum þínum um ástandið á rekstrinum; bara afsakanir yfir ástandinu.“

Í svarinu segir að frávikin hafi verið mjög alvarleg og er þá vísað til þeirra hrossa sem voru metin horuð eða grindhoruð.

„Það var ítrekað bent á þetta í eftirlitsheimsóknum, en ábendingar bárust um að hross í þessu ásigkomulagi voru notuð undir ferðamenn um leið og eftirlitsfólk væri búið að yfirgefa svæðið. Einnig bárust fleiri ábendingar um mjög alvarleg atvik þar sem örmögnun hrossa var lýst og starfsfólk Sólhesta uggandi um velferð hrossanna. Þannig atvik komust eðli málsins samkvæmt ekki í eftirlitsskýrslur enda atvik sem gerðust ekki þegar eftirlitsfólk var á staðnum.“

Þá segir lögfræðingur MAST að það virðist hafa verið rétt ákvörðun að boða stöðvun starfseminnar þar sem úrbætur voru þá gerðar án tafar. Því hafi verið hægt að falla frá boðaðri vinnustöðvun.

„MAST vonast eftir góðri samvinnu við Sólhesta framvegis þannig að velferð hrossanna sé tryggð. Stofnunin mun þó hafa tíðara eftirlit með starfsemi Sólhesta ehf með tilheyrandi kostnaði eftir svona aðgerðir,“ segir í lok svarsins.

#hótaði #mast #starfsemi #stöðva #sólhesta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-04-mast-hotadi-ad-stodva-starfsemi-solhesta-vegna-itrekadara-brota-a-dyravelferdarlogum-482957

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að elska vindmyllur
📅 20.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að elska vindmyllur
Mynd Pistlahöfundur var lengi hrifin af vindmyllum, en
Eldsneytisverð í hæstu hæðum – annan daginn í röð
📅 20.09.2026 👁️ 1
Eldsneytisverð í hæstu hæðum – annan daginn í röð
Dísilverðið hækkaði í Frakklandi í dag og hefur aldrei verið hærra. Lítrinn kostaði að meðaltali 2,41 evru í morgun, samkvæmt útreikningum franska við...
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna
📅 20.09.2026 👁️ 1
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna
Forsætisráðherra Póllands greinir frá gríðarlegu mannfalli úkraínskra hermanna Fréttin20. september 2026Erlent, Skýrslur, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Vill þyngja refsingu fyrir vændiskaup af barni í fjögur ár
📅 20.09.2026 👁️ 1
Vill þyngja refsingu fyrir vændiskaup af barni í fjögur ár
Dómsmálaráðuneytið birti á föstudag drög að frumvarpi til breytinga á refsiákvæðum við vændiskaupum. Þar er lagt til að fangelsisdómur verði lágmarksr...
Tuttugu lögðu ó­lög­lega - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 1
Tuttugu lögðu ó­lög­lega - Vísir
Þar segir að alls hafi 8 gist í fangageymslu lögreglu í nótt. Þá skráði lögregla samtals um 175 mál skráð í kerfinu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgu...
Hægur vindur en víða blautt
📅 20.09.2026 👁️ 1
Hægur vindur en víða blautt
Í dag dropar aðeins á landsmenn en vindur verður með hægara móti. Meiri kraftur verður í veðrinu á morgun þegar austan- og suðaustan átt gengur yfir l...
Fegurðar­drottning drepin eða ein­hver myrtur á hjólhýsasvæðinu - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 1
Fegurðar­drottning drepin eða ein­hver myrtur á hjólhýsasvæðinu - Vísir
Eigendur Morðgátufélagsins og algjörlega spilasjúk hjón. „Síðan týndum við því miður blaðinu með stigagjöfinni en þá var skorið komið langt yfir tíu þ...
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
📅 20.09.2026 👁️ 1
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk
Lögreglan fellir niður mál gegn Heiðu Ósk Heiða Ósk í Áfram stelpur fagnar sigri Mynd: Facebook/Aðalheiður Rannsókn á meintu ærumeiðingarmáli gegn Aða...
Svanasöngur jöklanna
📅 20.09.2026 👁️ 2
Svanasöngur jöklanna
Svanasöngur jöklanna Bráðn­andi jökl­ar ferð­ast á ógn­ar­hraða inn í for­tíð­ina. Ég er með rímu á heilanum. Dáleiðandi söng eldri konu en ég heyri þ...
Kviknaði í tölvu á eldavél
📅 20.09.2026 👁️ 2
Kviknaði í tölvu á eldavél
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar hafði kviknað í tölvu sem hafði verið skilin eftir á eldavél. ...
Brutust inn hjá fyrir­tæki - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Brutust inn hjá fyrir­tæki - Vísir
Frá þessu er greint í dagbók lögreglu en þar segir að gerendur hafi fundist síðar um nóttina og verið fluttir á lögreglustöð vegna málsins. Málinu er ...
Skipu­leggur eigin jarðar­för - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Skipu­leggur eigin jarðar­för - Vísir
Dagný ólst upp í Mosfellsbæ og Vestmannaeyjum og lýsir því að fjölskyldulífið hafi tekið nokkuð snemma við. Hún var rétt skriðin yfir tvítugt þegar hú...
Hvessir all­veru­lega á morgun - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Hvessir all­veru­lega á morgun - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag sé spáð suðvestlægri átt 3-8 m/s og dálítilli rigningu eða stöku skúrum víða um land. Styttir upp sunnanla...
Óttast að eitur hafi orðið tíu ljónum á verndarsvæði að aldurtila
📅 20.09.2026 👁️ 2
Óttast að eitur hafi orðið tíu ljónum á verndarsvæði að aldurtila
Grunur leikur á að eitrun hafi valdið dauða tíu ljóna á Ngorongoro-verndarsvæðinu í Tansaníu, samkvæmt upplýsingum yfirvalda. Svæðið er á heimsminjask...
Battle intensifies to stop demolition of historic coastal home in Fuerteventura
📅 20.09.2026 👁️ 2
Battle intensifies to stop demolition of historic coastal home in Fuerteventura
A last-minute battle is continuing to prevent action against a historic coastal property in Cueva de la Negra, Fuerteventura, ahead of a demolition da...
553km undersea cable completed linking three Canary Islands
📅 20.09.2026 👁️ 2
553km undersea cable completed linking three Canary Islands
A major new underwater communications network linking three of the Canary Islands has reached an important milestone after 553 kilometres of cable wer...
Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni
📅 20.09.2026 👁️ 2
Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni
Ungt jafnaðarfólk skorar á meirihlutann í Reykjavík að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni og kallar jafnframt eftir því að ríkisstj...
Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt
📅 20.09.2026 👁️ 2
Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt
Að minnsta kosti tvennt var drepið í umfangsmikilli drónaárás Úkraínuhers á rússnesku höfuðborgina Moskvu í nótt. Það voru kona á fimmtudagsaldri og r...
Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 2
Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Eldur slökktur í bíl nærri Rauðhólum
📅 20.09.2026 👁️ 2
Eldur slökktur í bíl nærri Rauðhólum
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um bíl í ljósum logum við Rauðhóla nærri Suðurlandsvegi um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt upplýsingum...
Yfirvöld rannsaka dularfullt drónaflug yfir alþjóðaflugvellinum
📅 20.09.2026 👁️ 2
Yfirvöld rannsaka dularfullt drónaflug yfir alþjóðaflugvellinum
Rannsókn er hafin á tildrögum þess að stöðva þurfti umferð um alþjóðaflugvöllinn í Lúxemborg tímabundið á föstudagskvöldið vegna flugs óþekktra dróna....
Diana’s brother says Harry and Meghan face 'cancerous' press
📅 20.09.2026 👁️ 2
Diana’s brother says Harry and Meghan face 'cancerous' press
Earl Spencer says that he can see echoes of Princess Diana's treatment from the press in the way Harry and Meghan are scrutinised.
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, says Russia
📅 20.09.2026 👁️ 2
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, says Russia
An oil refinery was also reportedly hit in Moscow, and flights were suspended at two capital airports.
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, Russia says
📅 20.09.2026 👁️ 1
Two killed in 'massive' Ukrainian drone attack on Moscow region, Russia says
An oil refinery was also hit in the Russian capital and flights were suspended at two airports.
Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana, Earl Spencer tells BBC
📅 20.09.2026 👁️ 2
Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana, Earl Spencer tells BBC
Princess Diana's brother describes the press coverage of the Duke and Duchess of Sussex as a "cancerous influence in their life".
Earl Spencer tells BBC Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana
📅 20.09.2026 👁️ 2
Earl Spencer tells BBC Harry and Meghan's media treatment echoes what happened to Diana
Princess Diana's brother says she was "really brought low by all that criticism" and he saw her in "tears of despair".
Eldflaug grandað á leið til Riyadh
📅 20.09.2026 👁️ 2
Eldflaug grandað á leið til Riyadh
Yfirvöld í Sádi Arabíu segja herinn hafa grandað langdrægri eldflaug sem uppreisnarmenn Húta í Jemen skutu í átt að höfuðborginni Riyadh í dögun. Húta...
Aukið fylgi flokka yst til hægri og vinstri veldur titringi í herbúðum kanslarans
📅 20.09.2026 👁️ 2
Aukið fylgi flokka yst til hægri og vinstri veldur titringi í herbúðum kanslarans
Niðurstöður kosninga til þinga tveggja sambandslanda í Þýskalandi í dag gætu valdið miklum titringi í Berlín og veikt stöðu ríkisstjórnar kanslarans F...
Eldur í bíl í Heið­mörk - Vísir
📅 20.09.2026 👁️ 3
Eldur í bíl í Heið­mörk - Vísir
Af myndbandinu sem sjá má að neðan að dæma er bíllinn gjörónýtur.  Vegurinn inn í Heiðmörk frá Suðurlandsvegi var lokaður á meðan slökkviliðið sinnti ...
FÍB: fátt breyst varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum
📅 20.09.2026 👁️ 3
FÍB: fátt breyst varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum
FÍB segir litlar breytingar hafa orðið varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum nema að ítarlegri texti með smærra letri hefur verið settur á...
Ed Sheeran addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
📅 20.09.2026 👁️ 3
Ed Sheeran addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
The mega-star singer held his first concert since rapper Macklemore was removed from his tour and other artists dropped out.
Ed Sheeran admits 'mistakes' as he addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
📅 20.09.2026 👁️ 3
Ed Sheeran admits 'mistakes' as he addresses Macklemore controversy at Philadelphia show
The mega-star spoke about the issue and about Israel and Gaza at his first concert since rapper Macklemore was removed from his tour and other artists...
Ed Sheeran admits 'mistakes' at first show since Macklemore controversy in Philadelphia
📅 20.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran admits 'mistakes' at first show since Macklemore controversy in Philadelphia
The mega-star spoke about Israel and Gaza at his Philadelphia show after rapper Macklemore was dropped from his tour.
Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda
📅 19.09.2026 👁️ 3
Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda
Lögregla handtók 24 mótmælendur í hollensku borginni Haag í dag við um 500 manna útifund samtaka yst á hægri kanti stjórnmálanna.Hollenska almannafrét...
Bannið skýlaust stjórnarskrárbrot
📅 19.09.2026 👁️ 3
Bannið skýlaust stjórnarskrárbrot
Félag þeirra fréttamanna sem starfa í Hvíta húsinu í Washington (WHCA) krefst þess að Bandaríkjaforseti afturkalli án tafar aðgangsmissi þriggja fjölm...
„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
„Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ - Vísir
Eru það þau Þórður Pálmason og Auður Kristmundsdóttir sem eina ferðina enn standa að baki opnun staðarins en þau komu að fyrstu opnun hans á Lækjargöt...
Why growing older LGBTQ+ community in Britain fears losing identity
📅 19.09.2026 👁️ 2
Why growing older LGBTQ+ community in Britain fears losing identity
A report suggests older LGBTQ+ people experience more social isolation than their heterosexual peers.
Sex and dating in midlife - Sharon Horgan on her new comedy Youth
📅 19.09.2026 👁️ 2
Sex and dating in midlife - Sharon Horgan on her new comedy Youth
"It's really weird watching yourself age on screen because that's not fun," Horgan reveals.
Cultural treasures are being destroyed by war, and people want justice
📅 19.09.2026 👁️ 2
Cultural treasures are being destroyed by war, and people want justice
A cauldron of conflicts is bubbling across the world, with cultural monuments being destroyed. These people are fighting against it.
Not all AI workers think the tech could kill everyone
📅 19.09.2026 👁️ 3
Not all AI workers think the tech could kill everyone
In text exchanges and conversations, multiple people who have worked for leading companies are sceptical of the warnings.
Our head teacher was an abuser. We joined forces to get justice - now we're married
📅 19.09.2026 👁️ 4
Our head teacher was an abuser. We joined forces to get justice - now we're married
Students spent years collecting evidence against their Indonesian principal, before falling in love.
The deadly new drugs reshaping fight against addiction
📅 19.09.2026 👁️ 2
The deadly new drugs reshaping fight against addiction
Experts warn potent new substances are making an already deadly crisis more dangerous.
The deadly new drugs making Scotland's fight against addiction even harder
📅 19.09.2026 👁️ 2
The deadly new drugs making Scotland's fight against addiction even harder
Experts warn potent new substances are making an already deadly crisis more dangerous.
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ von bráðar - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ von bráðar - Vísir
Er þetta meðal þess sem hann greinir frá í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social en þar skrifar hann einnig að það séu einungis þeir allra róttækust...
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ - Vísir
Er þetta meðal þess sem hann greinir frá í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social en þar skrifar hann einnig að það séu einungis þeir allra róttækust...
Brutust inn í dýragarð og börðu krókódílinn Dangalabba með málmrörum
📅 19.09.2026 👁️ 3
Brutust inn í dýragarð og börðu krókódílinn Dangalabba með málmrörum
Tveir unglingspiltar í Ástralíu eru sakaðir um að hafa brotist inn í dýragarð. Þar réðust þeir á stóran saltvatnskrókódíl og börðu hann með málmrörum....
Stóð frammi fyrir skelfilegu vali á K2 – „Ég hefði aldrei átt að gera þetta“
📅 19.09.2026 👁️ 3
Stóð frammi fyrir skelfilegu vali á K2 – „Ég hefði aldrei átt að gera þetta“
Ný heimildarmynd varpar ljósi á eitt umdeildasta atvik fjallgöngusögunnar á síðari árum, þegar norska fjallgöngukonan Kristin Harila og félagar hennar...
Vinir Maliu sem grunuð er um hundanauðgun koma henni til varnar – „Ég bið fyrir henni, börnunum og hundinum“
📅 19.09.2026 👁️ 3
Vinir Maliu sem grunuð er um hundanauðgun koma henni til varnar – „Ég bið fyrir henni, börnunum og hundinum“
Vinir Maliu Nummerdor sem var handtekin fyrir kynferðislegt dýraníð gagnvart heimilishundi sínum koma henni til varnar. Segja þeir að hún hafi aldrei ...
Strictly is back with new hosts as celebrities discover pairings
📅 19.09.2026 👁️ 3
Strictly is back with new hosts as celebrities discover pairings
Emma Willis, Josh Widdicombe and Johannes Radebe take over from long-running presenting duo Tess Daly and Claudia Winkleman.
Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri - Vísir
📅 19.09.2026 👁️ 3
Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri - Vísir
Hinn 63 ára gamli Greg O´Neill lést í gærmorgun, þann 18. september, eftir að um 2,5 metra langur hvítháfur réðst á hann. Vitni lýstu því hvernig hann...