Matvælastofnun hefur varað neytendur við notkun Napoleon-grillpanna sem fluttar eru til landsins af Byko vegna flæðis þungmálma.
Byko hefur samkvæmt tilkynningu Matvælastofnunar innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitið á höfuðborgarsvæðinu.
Viðvörun um pönnurnar barst til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli, fóður og matarsnertiefni.
Í tilkynningu frá Byko er kaupendum ráðlagt að hætta að nota pönnuna umsvifalaust og skila henni í næstu verslun.