Maðurinn sem lýst var eftir fyrr í dag í Vestmannaeyjum er fundinn. Lögreglan greindi frá því í tilkynningu á facebook síðu embættisins í kvöld.
Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsti eftir manni fyrr í dag sem ekkert hafði spurst til síðan klukkan 07:00 í morgun.
Lögregla þakkar veitt aðstoð.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um að maðurinn sé fundinn.