Eldur kom upp í einum hreyfli vélarinnar við áreksturinn og var slökkvilið kallað á vettvang sem náði tökum á eldsvoðanum. Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá þessu.
Maðurinn sem lést hafði klifrað yfir grindverkið við flugbrautina og lést tveimur mínútum síðar þegar hann gekk þvert yfir flugbraut í veg fyrir flugvélina sem ók þar til að taka á loft. Maðurinn lést um klukkan ellefu í gærkvöld á staðartíma.
Í frétt ABC um málið kemur fram að maðurinn hafi að hluta sogist inn í hreyfil vélarinnar og þannig mætt endalokum sínum. Þar kemur einnig fram að tólf hafi slasast við áreksturinn. Þar af voru fimm færðir á slysadeild.
Allir 224 farþegar vélarinnar yfirgáfu vélina um uppblásanlegar neyðarrennibrautir vélarinnar. Í yfirlýsingu frá Frontier segir að flugfélagið sé harmi slegið vegna atviksins.
„Við þurfum að stöðva á flugbrautinni. Við lentum á einhverjum. Það er eldur í hreyflinum,“ sagði flugmaður vélarinnar í samtali við flugumferðarstjórn. Flugvélin var komin á þó nokkurn hraða þegar maðurinn gekk í veg fyrir hana.