Tæplega þúsund slökkviliðsmenn sinna slökkvistarfi en ekki hefur enn náðst að ráða niðurlögum eldanna sem loga í nágrenni Spokane-borgar.
Um sjö hundruð byggingar hafa eyðilagst í eldunum en upptök eldanna eru enn óljós. Fylkisstjóri Washington, Bob Ferguson, hefur lýst yfir neyðarástandi í fylkinu.
Lisa Brows, borgarstjóri Spokane, segir eldana vera verstu náttúruhamfarir sem svæðið hefur orðið fyrir en enn sé verið að meta umfang tjónsins.
Sterkir vindar og mikill þurrkur á svæðinu hraða útbreiðslu eldanna og hefur bandaríska veðurstofan (The National Weather Service) varað við mikilli eldhættu.