Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir næstu viku kunna að verða góða fyrir Grænland, Danmörku og Bandaríkin. Samningurinn styrki öryggi á norðurslóðum.
Rasmussen sagði þetta í færslu á Instagram-síðu sinni. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samninginn á samfélagsmiðli sínum og Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, staðfesti það.
„Vonandi víkur tímabil óvissu fyrir bindandi samkomulagi sem styrkir öryggi á Norðurslóðum og í Norður-Atlantshafi, og þar með sameiginlegt öryggi okkar innan NATO og Evrópu, um leið og rauður línur konungsríki okkar eru virtar,“ sagði Rasmussen á Instagram.
Hann bætti við að það væri mikilvægt á tímum þegar öryggisástand Norðurslóða hefði breyst.
Rasmussen deildi mynd með færslunni frá fundi sínum í Washington í janúar með þáverandi utanríkisráðherra Grænlands, Vivian Motzfeldt, JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Mikilvægt samkomulag
Leiðtogar stjórnmálaflokka í Danmörku hafa einnig brugðist samningnum síðustu mínútur. Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, skrifar á samfélagsmiðilinn X að samkomulagið sé mikilvægt og jákvæðar fréttir fyrir Grænland, Danmörku og sameiginlegt öryggi þeirra.
„Fyrir mína parta er algjörlega nauðsynlegt að samningurinn viðurkenni fullveldi konungsríkisins og rétt Grænlendinga til að ráða yfir eigin framtíð. Þetta eru grundvallarreglur sem við verðum að standa fast á.“
Poulsen var varnarmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn þegar Trump hóf að sækjast af alvöru eftir yfirráðum á Grænlandi. Hann vonar að samningurinn skapi meiri frið og öryggi á Grænlandi og þakkar grænlensku samstarfsfólki fyrir samstarfið á erfiðum tímum.