Minnst 25 þjóðarleiðtogar í bandalagi hinna viljugu - þjóðabandalagi til stuðnings Úkraínu í stríðinu við Rússa, eru komnir til Parísar til að ræða um stríðið og beita þrýstingi til að koma á vopnahléi og nýjum viðræðum. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tekur einnig þátt í fundinum. Ísland er hluti af þessu bandalagi en enginn fulltrúi héðan situr fundinn.
Tilbúin í blóðsúthellingar til að verja Evrópu
Emmanuel Macron forseti Frakklands sagði í ávarpi til hersins í dag að Evrópa væri að verða afl sem gæti varið sig sjálft. „Skilaboðin sem við sendum heiminum eru þessi: Já, við stefnum að friði. Já, við metum frelsi og að lög séu virt. Og já, við erum tilbúin til að verja það. Alltaf, jafnvel þó að það kosti blóðsúthellingar ef nauðsyn krefur,“ sagði hann.
Leiðtogarnir hyggjast meðal annars ræða samstarf um loft- og eldflaugavarnir við Úkraínumenn, þar á meðal að heimila vopnaframleiðslu í Úkraínu. Franskir embættismenn hafa sagt við fjölmiðla að til standi að staðfesta stofnun fjölþjóðlegs herafla í Úkraínu sem tæki til starfa að loknum stríðsátökum.
Frakkar, Bretar og Spánverjar hafa reyndar lýst sig reiðubúna til að senda herlið til Úkraínu en Rússar hafa varað við því og segja það þýða að þeir hermenn yrðu þá réttlætanleg skotmörk fyrir Rússa. Dmitry Peskov talsmaður rússneskra stjórnvalda gaf reyndar lítið fyrir fundinn í dag. „Þetta er bandalag stríðsmanna,“ sagði hann og sakaði bandalagið um að vilja halda stríðinu áfram. Fylgst yrði vel með fundinum.
Bandalag um eldflaugavarnir
Nú síðdegis var tilkynnt að níu Evrópulönd hefðu ásamt Úkraínu myndað bandalag til að þróa eldflaugavarnakerfi í Evrópu. Í yfirlýsingunni kemur fram að það sé trú þessara þjóða að verndun Evrópu þurfi samstarf á heimsvísu um samhæft eldflaugavarnakerfi til að draga úr þeirri hættu sem stafi af eldflaugum. Löndin sem eru í þessu bandalagi eru Bretland, Danmörk, Frakkland, Holland, Ítalía, Noregur, Spánn, Svíþjóð, Úkraína og Þýskaland.
Úkraínumenn og Rússar skiptust á árásum í morgun. Drónaárásir Úkraínumanna drápu fjóra og voru þrír þeirra skammt frá Moskvuborg. Drónaárásir Rússa drápu minnst sex mann víða um Úkraínu. Úkraínumenn hafa gert Rússum töluverða skráveifu með árásum á olíuframleiðslu og þá neyddust Rússar til að hætta siglingu um Azov-haf austan við Krímskaga vegna stöðugra drónaárása Úkraínumanna. Meðal annars voru 10 flutningaskip og fjórar ferjur sprengdar í fyrrinótt.