Aldrei hafa jafn margir laxar gengið í Elliðaár og göngumet var sett í gær þegar tæplega sex hundruð laxar renndu sér í gegnum teljarann á tólf klukkustundum.
Teljarinn var settur upp árið 1989.
Þetta lofar því góðu fyrir laxveiðisumarið í Elliðaánum en það hefur farið hægt af stað víða á landinu.
Elliðaárnar skera sig úr
Árleg vöktun á laxgengi í Elliðaánum hefur verið frá árinu 1989.
Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur, fylgist vel með talningunni og sá í gær í hvað stefndi.
„Skemmtilegu fréttirnar eru þær að það er göngumet á sólarhringsgrunni.“
Talningin fer þannig fram að laxarnir renna sér í gegnum teljara, sem er í ánni. Laxarnir eru myndaðir og stærðarmældir og Jóhannes segir að stærstu laxarnir séu um 90 cm langir.
„Við erum að tala um að á hálfum sólarhring var að meðaltali einn lax nánast að fara í gegnum teljarann á mínútu,“ segir Jóhannes.
Jóhannes segir nokkrar ástæður vera fyrir göngumetinu í ánni.
Síðustu ár hefur veiðimönnum verið gert að sleppa veiddum löxum. Þannig hrygna fleiri, komast aftur út í sjó og svo aftur í ána.
Auk þess var orkuöflun með virkjun í ánni lögð af og opnað á ný fyrir Árbæjarstífluna.
Að mati Jóhannesar hafa þær aðgerðir leitt til þess að Elliðaárnar eru orðnar einstakar í samanburði við aðrar laxveiðiár.
„Hér eru bestu endurheimtur úr sjó á Atlantshafslaxi í veröldinni.“
Töfrar í Elliðaánum
Jóhannes segir suðvesturhorn landsins vera hentugt fyrir veiði en að aðrar ár séu ekki á pari við Elliðaárnar.
„Elliðaárnar hafa ákveðið umfram aðrar og ekki er það nú vegalengdin, framleiðslusvæðið er nú ekki stórt en það er afskaplega frjósamt.“
Í fyrra gengu 3400 laxar í ána yfir allt sumarið.
Það sem af er sumri hafa 2000 laxar gengið, af þeim eru um 100 sjóbirtingar.
Jóhannes segir spennu í loftinu og á jafnvel von á að sumarið í ár verði gjöfulla en í fyrra.
„Það sem gekk á á 12 klukkutímum hérna; það væru flestar laxveiðiár á Íslandi ánægðar með það sem sumarveiðina. Þannig það er ekki hægt að kvarta hérna í Elliðaánum.“