Dóra Björt Guðjónsdóttir fráfarandi borgarfulltrúi í Reykjavík hefur tjáð sig um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins. Óskar hún Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins til hamingju en óhætt er að segja að orð hennar í garð Einars Þorsteinssonar oddvita Framsóknarflokksins séu ekki jafn hlýleg.
Dóra Björt tjáir sig um nýja meirihlutann í pistli á Facebook:
„Það er ástæða til að óska Hildi Björnsdóttur til hamingju sem verðandi borgarstjóra. Megi henni farnast vel að halda utan um fjöregg framtíðarinnar, því þrátt fyrir loforð um að gera allt strax móta ákvarðanir dagsins í dag fyrst og fremst framtíðina, sér í lagi framtíð hins byggða umhverfis. Það er gott að sjá að hún velur frjálslyndi og mannréttindavernd umfram fordóma og mannvonsku. Það gæti jafnvel þýtt að eitthvað mark sé takandi á lofræðum Sjálfstæðisflokksins um frelsið.“
Greint var frá því að þegar nýji meirihlutinn var kynntur að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, verði forseti borgarstjórnar en Einar formaður borgarráðs en þau muni hafa hlutverkaskipti eftir eitt ár. Um þetta skrifar Dóra Björt:
„Nýr meirihluti talar nú um festu og stöðugleika til næstu ára og Björgu var tíðrætt um hlutverkaskipti á liðnu kjörtímabili. Þau hlutverkaskipti eiga þó kaldhæðnislega fyrst og fremst rætur sínar að rekja til Einars Þorsteinssonar, sem vildi fyrst skiptast á stólum borgarstjóra og formanns borgarráðs – og sprengdi svo meirihlutann með tilheyrandi pólitísku hlutverkahringli.“
Þar vísar Dóra Björt til þess þegar Einar sleit meirihlutasamstarfinu á síðasta kjörtímabili, þegar hann var borgarstjóri, og reyndi að mynda nýjan meirihluta en endaði í minnihluta:
„Vert er að nefna að sami Einar Þorsteinsson situr í nýjum meirihluta. Og viti menn – nú á aftur að hringla í embættum, svo Einar geti trappað sig niður í örflokkinn sem hann talar nú fyrir. Loforðin um að egó myndu ekki flækjast fyrir og að stöðugleikinn yrði settur í forgang virðast því fokin út um víðan völl strax í fyrstu beygju.“