Félagið Æruvernd birtir heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag þar sem fullyrt er að engin haldbær gögn styðji þær ásakanir sem settar hafa verið fram gegn sr. Friðriki Friðrikssyni heitnum, einum áhrifamesta æskulýðsleiðtoga Íslandssögunnar.
Í auglýsingunni er vísað til niðurstöðu málþings sem Æruvernd stóð fyrir þann 19. apríl síðastliðinn undir yfirskriftinni „Hver er sannleikurinn? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla“.
Segja ávirðingar ekki standast
Í ályktun málþingsins segir að sérstaklega hafi verið lagt mat á hvort hægt væri að „fullyrða eða telja líklegt“ að sr. Friðrik Friðriksson hefði brotið gegn kynferðismörkum barna.
Þar segir jafnframt að farið hafi verið yfir skýrslu sr. Bjarna Karlssonar og Sigrúnar Júlíusdóttur, auk aðkomu þeirra Tómasar Torfasonar, framkvæmdastjóra KFUM og K, og Guðmundar Magnússonar. Samkvæmt ályktuninni hafi þeim öllum verið boðið að taka þátt í málþinginu en ekkert þeirra mætt.
Niðurstaða málþingsins hafi verið sú að „ekkert haldbært lægi fyrir“ sem sýndi fram á að sr. Friðrik hefði brotið gegn kynferðismörkum barna.
Þá segir í ályktuninni að ekki liggi fyrir að sr. Friðrik hafi nokkru sinni beitt einstakling kynferðislegri nauðung eða brotið kynferðislega gegn fólki.

Krefjast þess að styttan verði sett upp aftur
Æruvernd fer fram á að Reykjavíkurborg setji styttu af sr. Friðriki aftur á sinn fyrri stað við Lækjargötu í Reykjavík.
Styttan var fjarlægð í kjölfar umræðu um ásakanir sem fram komu á síðustu árum um meinta óviðeigandi háttsemi sr. Friðriks gagnvart ungum drengjum.
Í ályktuninni er einnig skorað á KFUM og K og aðra aðila sem hafi tekið niður minnismerki um sr. Friðrik að koma þeim fyrir á nýjan leik.
Boða til aðalfundar í júní
Í auglýsingunni kemur jafnframt fram að boðað hafi verið til aðalfundar Æruverndar þann 8. júní næstkomandi í Friðrikskapellu.
Þar segir að nýir félagsmenn séu velkomnir og muni teljast stofnfélagar félagsins. Þá er tekið fram að tekið verði við stofnframlögum til félagsins.