Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í kvöld vegna konu sem slasaðist á Falljökli.
Í samtali við mbl.is segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, að meiðsli konunnar hafi ekki verið alvarleg. Það hafi þó reynst snúið að bera konuna til baka og var því ákveðið að kalla til þyrlu.
Konan var flutt í Skaftafell og henni komið þar undir hendur sjúkraflutningamanna.