Kona bitin á baðströnd á Lanzarote

Ung kona varð fyrir biti frá barðaháfurunga (e. angel shark) á sunnudagseftirmiðdag eftir að hún steig óvart á dýrið sem faldi sig undir sandinum þegar hún var að synda við strönd á Lanzarote.
Atvikið átti sér stað um klukkan fjögur síðdegis á einni af ströndum Playa Honda í Puerto del Carmen.
Samkvæmt vitnum var ungi hákarlinn algjörlega falinn í grunnum sandbotninum þegar konan steig óafvitandi á hann, sem olli því að dýrið brást við til varnar.
Konan fann skyndilegt högg og síðan bit í annan fótinn. Vitni segja að hún hafi þurft að sparka ítrekað til að losa sig úr taki hákarlsins.
Atvikið vakti fyrst nokkurn ótta meðal strandgesta og talið var að kalla þyrfti til neyðaraðstoð, en síðar kom í ljós að meiðslin voru minniháttar.
Konan hreinsaði sárið sjálf á staðnum með sápu og vatni áður en hún bar á það sýklalyfjakrem til að koma í veg fyrir sýkingu.
Vegna þess að meiðslin reyndust yfirborðsleg þurfti hún ekki að fara á sjúkrahús.
Algengir við Kanaríeyjar
Barðaháfur (Squatina squatina) finnst víða á sandbotni við Kanaríeyjar og er þekktur fyrir hæfileika sína til að fela sig í sandinum.
Tegundin grefur sig oft niður þannig að aðeins augun sjást meðan hún bíður eftir bráð.
Þrátt fyrir að tilheyra hákarlaættinni leggja sérfræðingar áherslu á að barðaháfar séu ekki taldir hættulegir mönnum og ráðist ekki að fólki að fyrra bragði.
Flest skráð bit eiga sér stað þegar fólk stígur óvart á dýrin eða þau telja sig vera í hættu.
Sérfræðingar ráðleggja fólki að draga fæturna varlega eftir sandinum þegar gengið er út í sjó á svæðum þar sem barðaháfar lifa. Þannig fá dýrin viðvörun um nærveru fólks og geta synt í burtu áður en snerting verður.