Prestur við hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu í Reykjavík segir þjóf ekki hafa haft mikið upp úr innbroti í kirkjuna um helgina. Hann hafi greinilega aldrei áður komið inn í kirkjuna því hann hafi brotið sér leið inn þar sem ekki er aðgengi í restina af húsnæðinu.
Helgi Guðnason, prestur og forstöðumaður hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, segir þjófinn hafa tekið dósapoka og gamlan kassagítar.
„Þetta er kassagítarsgarmur sem er skilinn þarna eftir og hver sem er má nota hann, þannig þetta voru ekki verðmæti,“ segir Helgi.
Hann segir að vegna staðsetningar kirkjunnar skammt frá miðborginni sé reglulega brotist inn.
„Mesta tjónið fyrir okkur eru skemmdirnar sem verða þegar er verið að brjóta glugga eða spenna upp hurðir,“ segir Helgi, en það var einmitt tilfellið um helgina að hurð var spennt upp og hún skemmdist.
Þjófurinn vann engin önnur spellvirki en fór bersýnilega inn í bænaherbergi kirkjunnar.
„Ef hann fór inn og bað þá finnst okkur það ágætt,“ segir Helgi.