Herinn í Venesúela réðist til atlögu gegn kólumbískum vinstrisinnuðum uppreisnarmönnum sem tilheyra Þjóðfrelsishernum ELN (s. Ejército de Liberación Nacional).
Uppreisnarmennirnir höfðu slegið upp búðum Venesúelamegin við landamærin. Fjöldi manns er sagður hafa látist í árásinni.
Þetta er í fyrsta skipti sem herinn í Venesúela ræðst að Þjóðfrelsishernum þegar hann fer yfir landamærin, en landinu var þar til nýlega stjórnað af sósíalistanum Nicolas Maduro. Honum var þó komið frá völdum í janúar þegar Bandaríkin réðust inn í landið og numu Maduro á brott.