Samkomulag hefur orðið á milli atvinnuvegaráðherra Hönnu Katrínar Friðriksson og Bryndísar Hlöðversdóttur ráðuneytisstjóra um að Bryndís flytjist í starf sérfræðings í ráðuneytinu frá og með 1. júní næstkomandi.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Bryndís hafi sjálf óskað eftir flutningi. Þá hafi ráðherra jafnframt ákveðið að Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda flytjist í starf ráðuneytisstjóra frá sama tíma.
Kolbeinn er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona.
Á árum áður gegndi Kolbeinn starfi skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands við Evrópusambandið í Brussel og skrifstofustjóri á skrifstofu fiskveiðistjórnunar í sjávarútvegsráðuneytinu.
Þá var Kolbeinn yfirlögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðideildar skilanefndar og slitastjórnar Kaupþings og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Kolbeinn starfaði jafnframt sem lögmaður og sat í stjórnum ýmissa fyrirtækja.
Árið 2020 var Kolbeinn skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu matvæla í matvælaráðuneytinu og tók við nýrri skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu árið 2025. Kolbeinn hefur verið staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2021.