Formaður VR segir að ríki og sveitarfélög hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar varðandi kjarasamninga. Löngu sé ljóst að forsendur þeirra hafi brostið og að verðbólga verði yfir 4,7% uppsagnarákvæði samninganna við næstu verðbólgumælingu.
Kjarninn liggur í verðbólgunni og vöxtunum
„Klukkan heldur bara áfram að tifa,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. „Annars vegar í átt að vísitölumælingunni 27. ágúst - hins vegar í átt að stýrivaxtaákvörðun sem verður 19. ágúst. Í þessum tveimur þáttum, verðbólgunni og vöxtunum liggur kjarninn í kjarasamningum og lífskjörum almennings.“
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verðbólga, sem nú mælist 5,3% verði yfir 4,7% viðmiði kjarasamninganna, svokallaðra stöðugleikasamninga, þann 1. september þegar heimild er til að endurskoða þá.
Við gerð síðustu kjarasamninga tóku ríki og sveitarfélög á sig tilteknar skuldbindingar. „Það er verið að kalla eftir að þessir aðilar virði skuldbindingar sínar gagnvart gildandi samningum,“ segir Halla.
„Auk aðgerða í húsnæðismálum að ríki og sveitarfélög frysti gjaldskrár, afturkalli jafnvel yfirgengilegar gjaldskrárhækkanir.“
Sem voru, meðal annars: húsnæðismál, einn stærsti áhrifaþáttur verðbólgunnar.
Segir ekki staðið við fyrirheit
„Og að halda aftur af gjaldskrárhækkunum, sérstaklega sem varðar viðkvæma hópa,“ segir Halla. „Hvorugt af þessu hefur gengið eftir og það er stór hluti af því að við erum í þeirri stöðu sem við erum í.“
Hvaða tæki hefur hið opinbera til að grípa inn í?
„Við höfum verið að kalla eftir, að auk aðgerða í húsnæðismálum að ríki og sveitarfélög frysti gjaldskrár, afturkalli jafnvel yfirgengilegar gjaldskrárhækkanir. Svarið við því nú yfir sumarmánuðina var tvöföldun á komugjöldum í heilsugæslunni og það voru búin til ný gjöld fyrir fólk sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda. Þannig að þetta eru ekki góðar merkjasendingar inn í þessa þungu stöðu sem er á vinnumarkaði.“
Gengur hægt og skilar litlu
Þú og fleiri formenn verkalýðs- og stéttarfélaga hafið kallað eftir þríhliða samtali; þ.e.a.s. ykkar, aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera - hefur það samtal farið í gang?
„Það hefur verið samtal í gangi á milli SA, ASÍ og ríkisins. Okkur hefur hins vegar fundist það ganga mjög hægt og skila frekar litlu. Þarna er skortur á pólitískri forystu og pólitískri áræðni.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði eitthvað á þá leið í Silfrinu í vikunni að ASÍ og SA þyrftu að koma sér saman til að kjarasamningar héldu. Er verið að firra sig ábyrgð?
„Já, ég myndi segja að með þessum orðum sé forsætisráðherra að einhverju leyti að firra sig ábyrgð.“
Ríki og sveitarfélög eru með skuldbindingar gagnvart gildandi kjarasamningum og það er ekki hægt að kasta þeim bolta frá sér, bara si sona.