Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrum hæstaréttardómari er vægast sagt ósáttur við ákvörðun Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokknum en ekki Miðflokknum og segir um svik að ræða. Jón Steinar er gamalreyndur Sjálfstæðismaður og var í nokkurn tíma áhrifamaður í flokknum ekki síst á valdatíma Davíðs Oddssonar.
Jón tjáir óánægju sína með nýja meirihlutann á Facebook:
„Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn unnu sigur í kosningunum í Reykjavík fyrir 11 dögum. Þessir flokkar, sem eiga margt sameiginlegt, náðu hreinum meirihluta í Reykjavík; fengu 12 fulltrúa af 23, og felldu þar með vinstri meirihlutann sem hafði stjórnað borginni um langa hríð. Nú berast þær fréttir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi samið við vinstri flokkana, Viðreisn og Framsókn um meirihlutasamstarf. Ég trúi þessu varla. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins hljóta að mótmæla þessu framferði hástöfum.“
Eins og svo margir sem hafa haldið þessum sjónarmiðum á lofti þá kýs Jón Steinar að líta framhjá því að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn fengu samanlagt hærra hlutfall atkvæða en Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn.
Jón Steinar beinir því næst orðum sínum að Hildi Björnsdóttur:
„Ef Hildur Björnsdóttir vildi sanna að hún væri marktækur stjórnmálaforingi varð hún að að fylgja fram augljósum niðurstöðum kosninganna. Sagt hefur verið frá því fréttum að foringi Viðreisnar í þessum kosningum sé gömul vinkona Hildar. Ætli hún hafi frekar ákveðið að láta persónulegan kunningsskap hrekja sig frá því verki sem við blasti að henni bar að vinna? Með þessu hefur hún misboðið þeim kjósendum sem kusu flokk hennar og tóku þar þátt í að fella fyrri meirihluta. Margir þeirra munu segja sig úr flokknum og ekki kjósa hann í næstu kosningum.“